NOTE: This article is more than 5 years old.
02 November 2019
/

Alþjóðadagur til að stöðva refsileysi fyrir afbrot gegn fjölmiðlafólki.

Í tilefni af alþjóðadegi til að stöðva refsileysi fyrir afbrot gegn fjölmiðlafólki, sem er í dag, gerðist Ísland aðili að yfirlýsingu átta líkt þenkjandi ríkja á fastaráðsfundi ÖSE 31. október. Noregur flutti yfirlýsinguna fyrir hönd ríkjanna. Fjölmiðlafrelsi er eitt af viðfangsefnum ÖSE sem starfrækir Skrifstofu sérstaks fulltrúa fyrir frelsi fjölmiðla (RFOM). Á fastaráðsfundum er reglulega vakin athygli á málefnum fjölmiðla í aðildarríkjunum.

Ræðuna má lesa hér.