Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
06 janúar 2017
/
Innviðaráðuneytið
Upplýsingaöryggi - samningsviðauki og gerð áhættumats
Á vegum netöryggisráðs hefur verið útbúið umræðuskjal um samningsviðauka varðandi upplýsingaöryggi sem opinberir aðilar gætu haft hliðsjón af/notað við samningagerð. Einnig hafa verið mótaðar leiðbeiningar um gerð áhættumats og öryggisráðstafanir ásamt viðeigandi eyðublöðum.
Þessi skjöl eru kynnt á ráðstefnu UT-dagsins, 1. desember 2016: Stefnumót við örugga framtíð - Ógnir, tækifæri og áskoranir.
- Umræðuskjal - Samningsviðauki vegna upplýsingaöryggis
- Leiðbeiningar um gerð áhættumats og öryggisráðstafanir
- Eyðublað fyrir áhættumat