Skipan ríkisstjórnar
Forsætisráðherra
Kristrún Frostadóttir
Utanríkisráðherra
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Mennta- og barnamálaráðherra
Inga Sæland
Atvinnuvegaráðherra
Hanna Katrín Friðriksson
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, samstarfsráðherra Norðurlanda
Logi Einarsson
Dómsmálaráðherra
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innviðaráðherra
Eyjólfur Ármannsson
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
Jóhann Páll Jóhannsson
Heilbrigðisráðherra
Alma D. Möller
Fjármála- og efnahagsráðherra
Daði Már Kristófersson
Félags- og húsnæðismálaráðherra
Ragnar Þór Ingólfsson
Ríkisstjórnir
Þegar ný ríkisstjórn tekur við völdum er birt stefnuyfirlýsing þar sem talin eru upp þau mál sem ríkisstjórnin hyggst vinna að á kjörtímabilinu.
Ríkisstjórnarfundir eru fundir allra ráðherra sem sæti eiga í ríkisstjórn Íslands. Forsætisráðherra stýrir ríkisstjórnarfundum sem alla jafna eru haldnir tvisvar í viku á starfstíma Alþingis. Á fundunum eru m.a. rædd mikilvæg stjórnarmálefni og stjórnarfrumvörp og stjórnartillögur sem ráðherrar hyggjast leggja fram á Alþingi. Dagskrár ríkisstjórnarfunda eru birtar hér á vef Stjórnarráðsins.
Forsætisráðherra getur ákveðið, með samþykki ríkisstjórnar, að skipa ráðherranefndir til að fjalla um einstök mál eða málaflokka. Hlutverk ráðherranefnda er að efla samráð og samstarf á milli ráðherra og ráðuneyta þeirra og tryggja samhæfingu ef málefnasvið skarast og til að undirbúa mál til framlagningar í ríkisstjórn.
Ríkisstjórn starfar í samræmi við reglur um starfshætti ríkisstjórnar og siðareglur sem ríkisstjórnin setur sér.
Við upphaf þings er birt þingmálaskrá ríkisstjórnar. Þingmálaskrá er listi yfir þau stjórnarfrumvörp, stjórnartillögur og skýrslur sem ráðherrar hyggjast leggja fyrir Alþingi á komandi þingi.
Ríkisráð er skipað ráðherrum og forseta Íslands sem jafnframt stýrir fundum þess. Í ríkisráði eru lög og aðrar mikilvægar stjórnarráðstafnir bornar upp við forseta til staðfestingar.
Ríkisstjórn