Mannauðsmál ríkisins

Málefni ríkisstarfsmanna heyra undir fjármála- og efnahagsráðuneytið eins og kveðið er á um í lögum og forsetaúrskurði um Stjórnarráðið. Er þar átt við launa-, kjara- og lífeyrismál, réttindi og skyldur. Fjármála- og efnahagsráðherra annast einnig gerð kjarasamninga við starfsmenn ríkisins skv. lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna.

Hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu fer skrifstofa kjara- og mannauðsmála með verkefni á sviði kjara- og mannauðsmála ríkisins. Undir skrifstofuna fellur stefnumörkun mannauðsmála, auk málefna er varða réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna, kjarasamninga, launa- og lífeyrisréttindi sem og tölfræðiupplýsingar um mannauð ríkisins. Skrifstofan sinnir stefnumótandi ráðgjöf og stuðningi við ráðuneyti og ríkisstofnanir um vinnumarkaðs- og kjaramál, mannauðs- og starfsumhverfismál og er í fyrirsvari fyrir stjórnendasetur ríkisins. Skrifstofan á í samstarfi við samtök launafólks og samtök sveitarfélaga um launa- og kjaramál sem og umbætur á vinnumarkaði. Hún leiðir vinnu samninganefndar ríkisins við undirbúning, gerð og eftirfylgni kjarasamninga.

Sjá upplýsingar fyrir stjórnendur og mannauðsfólk hjá ríkinu á mannauðstorgi á Ísland.is.

Sjá einnig: