Um vefinn
Leitast er við að gera vefinn þannig að hann gagnist notendum sem best, því eru allar ábendingar vel þegnar. Þær má senda á [email protected].
Ábendingar er varða annað en vefinn skal senda á viðkomandi ráðuneyti, t.d. með því að smella á „Hafa samband“ hnappinn sem er hér fyrir neðan til hægri.
Nánar um vefinn
Vefstefna Stjórnarráðs Íslands
Vefur Stjórnarráðs Íslands, stjornarradid.is (e. government.is), er sameiginlegur ytri vefur ráðuneytanna. Markmiðið með vefnum er að fólk geti á einum stað nálgast upplýsingar, þjónustu og gögn frá Stjórnarráðinu með auðveldum hætti.
Efni vefsins er faglega unnið. Veittar eru áreiðanlegar upplýsingar um málefni ráðuneyta og ríkisstjórnar og leitast við að setja þær fram á einföldu og skýru máli. Nýtt efni er birt þegar það á við og eldra efni uppfært eftir þörfum.
Vefurinn styður við opna og gagnsæja stjórnsýslu.
Notendur og efni vefsins
Notendur vefs Stjórnaráðsins eru fjölbreyttur hópur. Við skrif og framsetningu efnis er leitast við að taka tillit til ólíkra þarfa. Í flestum tilvikum er efni sett fram með almenna notendur í huga, texti hafður stuttur og skýr svo hann gagnist sem flestum. Ef um mjög sértækt efni eða langan texta er að ræða er í upphafi birt stutt samantekt sem skýrir innihaldið. Grunnupplýsingar og efni sem er mest sótt er í efstu lögum vefsins en ítarlegra efni þar undir.
Ritstjórn og ábyrgð
Efni á vef Stjórnarráðsins er birt á ábyrgð ráðuneyta sem skráð eru fyrir efninu.
Hvert ráðuneyti sér um ritstjórn á því efni sem það birtir á vefnum og heyrir undir verksvið þess samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu málefna milli ráðuneyta. Ritstjórn á forsíðu vefsins er í höndum forsætisráðuneytisins í samstarfi við önnur ráðuneyti svo og efni sem er almennt um ríkisstjórn og Stjórnarráðið.
Framtíðarsýn
Ráðuneytin hafa um árabil rekið fjölda vefja. Með sameiningu þeirra var leitast við að bæta þjónustu við notendur með sem hagkvæmustum hætti. Á vef Stjórnarráðsins geta notendur á einum stað fundið efni og þjónustu óháð því hvaða ráðuneyti veitir hana. Skipulag efnis og leitarvirkni á vefnum er miðuð að þörfum notenda.
Vefur Stjórnarráðs Íslands á að vera til fyrirmyndar hvað varðar innihald, nytsemi, aðgengi, þjónustu og öryggi. Sérstaklega er gætt að aðgengismálum og farið eftir stefnu stjórnvalda í þeim efnum.
Vefurinn tekur mið af tækniþróun og þeim möguleikum sem hún býður upp á. Stöðlum og almennum viðmiðum í vefmálum er fylgt.
Um vefinn