Fyrirvari

Þótt leitast sé við að hafa upplýsingar á vef Stjórnarráðs réttar og í samræmi við nýjustu stöðu mála er ekki ávallt hægt að ábyrgjast að svo sé. Þetta á einnig við um tilvísanir og tengla í efni utan vefsins.

Á nær öllum síðum vefsins er spurt hvort efnið hafi verið hjálplegt. Með því að smella á „Nei“ gefst þér tækifæri til að koma á framfæri athugasemdum svo sem ef upplýsingar eru rangar.

Á vefnum eru fréttir/fréttatilkynningar frá ráðuneytum frá því að byrjað var að birta þær á netinu. Annað efni hefur tekið breytingum í gegnum tíðina. Eldri útgáfur vefsins og vefir einstakra ráðuneyta frá því fyrir 2017 (þegar þeir voru sameinaðir) og aftur til 2003 eru aðgengilegir í Vefsafni Landsbókasafns Íslands - Háskólasafni. Einnig er hægt að leita til ráðuneytanna með upplýsingar um efni sem ekki finnst á þessum vef.

Leitast er við að gera vefinn þannig að hann gagnist notendum sem best, því eru allar ábendingar vel þegnar, þær má senda á [email protected].