Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
Siðareglur ráðherra
Núgildandi siðareglur ráðherra voru samþykktar í ríkisstjórn Íslands í mars 2025. Um siðareglur ráðherra er fjallað í VI. kafla laga um Stjórnarráð Íslands nr. 115/2011.
Sjá einnig Handbók um siðareglur ráðherra sem samin var af Siðfræðistofnun Háskóla Íslands að beiðni forsætisráðuneytisins og í samvinnu við ráðuneytið. Í handbókinni eru settar fram skýringar á siðareglum ráðherra ásamt raunhæfum dæmum um túlkun þeirra.
Inngangur.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt meðfylgjandi siðareglur ráðherra, sbr. 2. mgr. 24. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands. Siðareglurnar veita leiðsögn um það hvers konar framganga hæfir svo veigamiklu embætti en jafnframt gefa þær almenningi færi á að bera háttsemi ráðherra saman við skráðar og útgefnar reglur. Þeim er ætlað að stuðla að trausti almennings á stjórnsýslunni.
Hver og einn ráðherra gætir að því fyrir sitt leyti að farið sé eftir reglunum. Ráðherra getur í vafatilvikum leitað ráðgjafar hjá forsætisráðuneytinu, sbr. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 115/2011.
Þeir sem telja ráðherra hafa brotið gegn siðareglunum geta komið ábendingum um það á framfæri við umboðsmann Alþingis en hann gætir þess meðal annars að stjórnsýslan fari fram í samræmi við siðareglur settar á grundvelli laga um Stjórnarráð Íslands, sbr. 1. mgr 2. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Telji einhver að brot á siðareglum hafi jafnframt falið í sér að hann sjálfur hafi verið beittur rangsleitni er unnt að bera fram kvörtun við umboðsmann Alþingis, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 85/1997.
1. gr. Frumskyldur.
Ráðherra hefur almannahagsmuni ávallt að leiðarljósi í störfum sínum.
Ráðherra hefur í heiðri lýðræðisleg gildi, mannréttindi og meginreglur réttarríkisins.
Ráðherra starfar í anda gagnsæis, sannsögli, ábyrgðar og heilinda.
Ráðherra sinnir starfi sínu af alúð, trúmennsku og heiðarleika. Hann beitir því valdi er fylgir embættinu á grundvelli laga og stjórnarskrár af hófsemi og sanngirni og án tillits til eigin hagsmuna.
2. gr. Hagsmunatengsl og hagsmunaárekstrar.
Ráðherra notfærir sér ekki stöðu sína í eiginhagsmunaskyni eða í þágu hagsmuna tengdra aðila.
Ráðherra forðast árekstra milli almannahagsmuna annars vegar og fjárhagslegra eða persónulegra hagsmuna sinna eða fjölskyldu sinnar hins vegar og gætir þess að persónuleg tengsl hafi ekki áhrif á störf sín. Takist honum ekki að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra af þessu tagi skal hann upplýsa um þá.
Ráðherra upplýsir um fjárhagsleg hagsmunatengsl eða önnur slík tengsl sem valdið geta hagsmunaárekstrum.
Ráðherra hefur ekki með höndum störf eða verkefni sem ósamrýmanleg eru embætti hans.
Ráðherra gætir hófs í viðtöku gjafa og þiggur ekki verðmætar gjafir persónulega í krafti embættis síns. Halda skal skrá um gjafir til ráðherra og skal hún birt opinberlega.
Ráðherra beitir sér fyrir því innan ráðuneytis og þeirra stofnana sem undir það heyra að tekið sé á hagsmunaárekstrum þegar þeir koma upp og hann fær vitneskju þar um. Þá skal hann beita sér fyrir því að starfsfólk sé sér meðvitað um mögulega hagsmunaárekstra og leiðir til að koma í veg fyrir þá.
3. gr. Meðferð fjármuna.
Ráðherra sýnir ráðdeild við meðferð fjármuna hins opinbera og hvetur starfsfólk ráðuneytis síns til hins sama.
Ráðherra nýtir ekki opinbera fjármuni eða gæði starfsins í persónulegum eða pólitískum tilgangi nema að svo miklu leyti sem lög og reglur leyfa.
Ráðherra efnir ekki til móttöku fyrir hópa og samtök, sem hefur í för með sér útgjöld, nema slíkt samræmist starfsemi ráðuneytis.
4. gr. Háttsemi og framganga.
Ráðherra sýnir virðingu í samskiptum og leggur sig fram um að framganga hans sé til fyrirmyndar þannig að hún styðji við hugarfar heilinda og ábyrgðar hjá stjórnvöldum og almenningi.
Ráðherra hefur trúverðugleika embættis síns að leiðarljósi í allri framgöngu og virðir mannréttindi og mannlega reisn í hvívetna.
5. gr. Faglegir stjórnarhættir.
Ráðherra leggur sig fram um að eiga gott samstarf við samráðherra og tryggir viðeigandi samráð við þá um stjórnarmálefni.
Ráðherra viðhefur faglega stjórnarhætti í hvívetna. Hann sér til þess að faglega sé staðið að skipun embættismanna og annars starfsfólks og leitar faglegs mats starfsfólks ráðuneytis síns áður en ákvarðanir eru teknar um einstök mál.
Ráðherra virðir hlutleysi og faglegt sjálfstæði embættismanna og annarra starfsmanna.
Ráðherra gerir skýran greinarmun á flokkspólitísku starfi, svo sem í tengslum við kosningar, og verkefnum ráðuneytis síns hverju sinni. Hann felur starfsmönnum ráðuneyta, öðrum en aðstoðarmanni, ekki verkefni sem tengjast hinu fyrrnefnda.
Ráðherra sér til þess að brugðist sé við ábendingum starfsmanna um siðferðilega ámælisvert eða ólögmætt athæfi í ráðuneyti hans eða á starfssviði ráðuneytisins. Hann gætir þess að starfsmenn sem benda á slíkt gjaldi ekki fyrir það.
6. gr. Gagnsæi og upplýsingamiðlun.
Ráðherra viðhefur gagnsæi um störf sín og ráðuneytis síns.
Ráðherra leggur sig fram um að gera upplýsingar aðgengilegar í samræmi við lög og almenn viðmið og hefur frumkvæði að birtingu upplýsinga sem eru í almannaþágu. Hann beitir sér fyrir því að upplýsingum sé miðlað af nákvæmni, heilindum og með skýrum hætti.
Ráðherra hefur frumkvæði að því að leiðrétta, eins fljótt og auðið er, rangar eða villandi upplýsingar, sem og hvers kyns misskilning er varðar málefni sem heyrir undir ráðherra.
Ráðherra viðhefur virkt og skipulegt samráð við almenning og hagaðila á forsendum jafnræðis og með almannahagsmuni að leiðarljósi. Hann tryggir gagnsæi um samskipti við hagaðila.
7. gr. Ábyrgð og eftirfylgni.
Ráðherra ber ábyrgð gagnvart Alþingi og almenningi á ákvörðunum sínum og breytni. Honum ber að sýna samstarfsvilja séu störf hans tekin til skoðunar af hálfu Alþingis eða eftirlitsstofnana þess og eins þegar þingmenn óska eftir upplýsingum á grundvelli laga um þingsköp.
Forsætisráðherra tryggir reglubundna fræðslu fyrir ráðherra um siðareglur og stuðlar að virkri samræðu um þær innan ríkisstjórnar.
8. gr. Gildistaka.
Reglur þessar öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi siðareglur ráðherra, nr. 599/2024.
Forsætisráðuneytinu, 11. mars 2025
Kristrún Frostadóttir
Hagsmunaskráning
Samkvæmt lögum nr. 64/2020, um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands, ber ráðherrum, aðstoðarmönnum ráðherra, ráðuneytisstjórum, skrifstofustjórum og sendiherrum að tilkynna forsætisráðuneytinu um tiltekna hagsmuni sína, skuldir og ábyrgðir, auk sömu upplýsinga fyrir maka og ólögráða börn.
Forsætisráðuneytið birtir upplýsingarnar opinberlega að hluta, þ.e. um hagsmuni ráðherra, aðstoðarmanna ráðherra og ráðuneytisstjóra.
Forsætisráðuneytið mælist til þess að hagsmunaskráningin sé yfirfarin og uppfærð í lok aprílmánaðar ár hvert. Þó ber að tilkynna jafnóðum ef umtalsverðar breytingar verða á þeim upplýsingum sem fram koma í hagsmunaskráningu.
Forsætisráðuneytið
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherraBenedikt Árnason, ráðuneytisstjóriÓlafur Kjaran Árnason, aðstoðarmaður forsætisráðherraKristín Ólafsdóttir, aðstoðarmaður forsætisráðherraAnna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnarSveinbjörn Finnsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnarHalldór Oddsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnarAtvinnuvegaráðuneytið
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherraKolbeinn Árnason, ráðuneytisstjóriStefanía Sigurðardóttir, aðstoðarmaður atvinnuvegaráðherraGuðmundur Gunnarsson, aðstoðarmaður atvinnuvegaráðherraDómsmálaráðuneytið
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherraPáll Winkel, ráðuneytisstjóriÞórólfur Heiðar Þorsteinsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherraÞórdís Valsdóttir, aðstoðarmaður dómsmálaráðherraFélags- og húsnæðismálaráðuneytið
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherraErna Kristín Blöndal, ráðuneytisstjóriHreiðar Ingi Eðvarðsson, aðstoðarmaður félags- og húsnæðismálaráðherraFjármála- og efnahagsráðuneytið
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherraHermann Sæmundsson, ráðuneytisstjóriJón Steindór Valdimarsson, aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherraDagbjartur Gunnar Lúðvíksson, aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherraHeilbrigðisráðuneytið
Alma D. Möller, heilbrigðisráðherraÁsta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóriGuðríður Lára Þrastardóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherraKjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherraInnviðaráðuneytið
Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherraIngilín Kristmannsdóttir, ráðuneytisstjóriAlexander Jakob Dubik, aðstoðarmaður innviðaráðherraAndri Egilsson, aðstoðarmaður innviðaráðherraMenningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherraSigrún Brynja Einarsdóttir, ráðuneytisstjóriTómas Guðjónsson, aðstoðarmaður menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherraHalla Jónsdóttir, aðstoðarmaður menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherraMennta- og barnamálaráðuneytið
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherraÁsdís Halla Bragadóttir, ráðuneytisstjóriSigurjón Arnórsson, aðstoðarmaður mennta- og barnamálaráðherraÁgúst Ólafur Ágústsson, aðstoðarmaður mennta- og barnamálaráðherraUmhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherraStefán Guðmundsson, ráðuneytisstjóriLárus M. K. Ólafsson, aðstoðarmaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherraJóna Þórey Pétursdóttir, aðstoðarmaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherraUtanríkisráðuneytið
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherraMartin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóriIngileif Friðriksdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherraRún Ingvarsdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherraAukastörf
Samkvæmt lögum nr. 64/2020, um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands, ber ráðherrum, aðstoðarmönnum ráðherra, ráðuneytisstjórum, skrifstofustjórum og sendiherrum að tilkynna forsætisráðuneytinu um tiltekna hagsmuni sína, skuldir og ábyrgðir, auk sömu upplýsinga fyrir maka og ólögráða börn.
Forsætisráðuneytið birtir upplýsingarnar opinberlega að hluta, þ.e. um hagsmuni ráðherra, aðstoðarmanna ráðherra og ráðuneytisstjóra.
- Halldór Oddsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnar.
Kennsla í lögfræði. Heimild veitt 5. janúar 2026. - Guðmundur Gunnarsson, aðstoðarmaður atvinnuvegaráðherra.Áheyrnarfulltrúi í menningar- og mannlífsnefnd Kópavogs. Heimild veitt 5. janúar 2026.
- Jóna Þórey Pétursdóttir, aðstoðarmaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Leiðbeinandi við meistararitgerð og kennsla við lagadeild Háskóla Íslands. Heimild veitt 4. mars 2025.Eftirlit með útdráttum hjá Íslenskri getspá. Heimild veitt 17. febrúar 2026. - Jón Magnús Kristjánsson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra.
Kennsla og umsjón með námskeiði við læknadeild Háskóla Íslands. Heimild veitt 11. febrúar 2025.Læknir á Heilbrigðisstofnun Vesturlands (heimild til að taka að sér tilfallandi vaktir). Heimild veitt 1. apríl 2025. - Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður ríkisstjórnar.
Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans (heimilt að taka að sér tilfallandi vaktir). Heimild veitt 11. febrúar 2025.Hjúkrunarfræðingur í gæsluvarðhaldsfangelsi í Svíþjóð (heimilt að taka að sér tilfallandi vaktir). Heimild veitt 22. maí 2026. - Anna Rut Kristjánsdóttir, aðstoðarmaður ríkisstjórnar (í leyfi).
Kennsla við lagadeild Háskóla Íslands. Heimild veitt 11. febrúar 2025. - Lárus M. K. Ólafsson, aðstoðarmaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Prófdómari við lagadeild Háskóla Íslands. Heimild veitt 29. janúar 2025. - Þórólfur Heiðar Þorsteinsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra.
Körfuknattleiksþjálfari hjá yngri flokkum Breiðabliks. Heimild veitt 29. janúar 2025.
Gjafir
Kristrún Frostadóttir
- Innrömmuð ljóð og bókin Það sem dvelur í þögninni. Gjöf frá Valgeiri Guðjónssyni og Ástu Kristrúnu Ragnarsdóttur, janúar 2025.
- Te og bangsar. Gjöf frá sendiherra Kína á Íslandi, janúar 2025.
- Viðarlíkan af skipi. Gjöf til ráðherra frá Dr. Khalid El-Enany, frambjóðanda til aðalframkvæmdastjóra UNESCO 2025-2029, janúar 2025.
- Bókin Tæknitröll og íseldfjöll, spil, bolli og taupoki. Gjöf frá sendiherra Bretlands á Íslandi, febrúar 2025.
- Silkiprentað kort og stækkunargler í gjafakassa. Gjöf frá sendiherra Kína á Íslandi, febrúar 2025.
- Áletraður minjagripur. Gjöf frá úkraínsku þjóðinni, febrúar 2025.
- Bolli. Gjöf frá Trans Vinum, apríl 2025.
- Bókin Hringurinn í Reykjavík. Gjöf frá Kvenfélaginu Hringnum, apríl 2025.
- Bókin Íslandsstræti í Jerúsalem (á íslensku og ensku). Gjöf frá Félaginu Ísland-Palestína, maí 2025.
- Mynd, hljómplata, tvær bækur, slæða, vínflaska og taupoki. Gjöf frá skipuleggjendum á leiðtogafundi EPC í Tirana, maí 2025.
- Skartgripur úr leir. Gjöf frá forsætisráðherra Hollands, maí 2025.
- Bókin Uppruni þjóðarsáttar og aðrar hagstjórnaráskoranir. Gjöf frá Jóhanni Rúnari Björgvinssyni, maí 2025.
- Silkislæða. Gjöf frá Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, júlí 2025.
- Bókin Kynesísk hagfræðisýn. Gjöf frá Jóhanni Rúnari Björgvinssyni, júlí 2025.
- Taupoki og bækurnar Saga Stykkishólms og Veðrið vitnar um þig. Gjöf frá Stykkishólmsbæ, ágúst 2025.
- Bolur. Gjöf frá Grindavíkurbæ, september 2025.
- Hringur og bækurnar The saga of survival og A Palestinian Armenian. Gjöf frá utanríkisráðherra Palestínu, október 2025.
- Vasi. Gjöf frá Hisako Takamado prinsessu af Japan, október 2025.
- Skálasett. Gjöf frá varnarmálaráðherra Þýskalands, október 2025.
- Ulu-hnífur. Gjöf frá formanni grænlensku landsstjórnarinnar, október 2025.
- Bókin Barist fyrir veik hross. Gjöf frá Ragnheiði Jónu Þorgrímsdóttur, nóvember 2025.
- Árbækur Ferðafélags Íslands 2020 og 2021. Gjöf frá Ferðafélagi Íslands, nóvember 2025.
- Bókin The year of living Danishly. Gjöf frá forsætisráðherra Ungverjalands, nóvember 2025.
- Hvítvínsflaska. Gjöf frá sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi, desember 2025.
- Bókin Diplomatic Bluebook 2025. Gjöf frá ríkisstjórn Japans, desember 2025.
- Dagatal. Gjöf frá sendiherra Japans á Íslandi, desember 2025.
- Ostakarfa. Gjöf frá Kaupfélagi Skagfirðinga, desember 2025.
- Dagatal. Gjöf frá sendiherra Þýskalands á Íslandi, desember 2025.
- Kampavínsflaska og dagatal. Gjöf frá sendiherra Kína á Íslandi, desember 2025.
- Rauðvínsflaska. Gjöf frá sendiherra Georgíu í Kaupmannahöfn, desember 2025.
- Tímaritið Húsfreyjan, þrjú tölublöð. Gjöf frá Kvenfélagasambandi Íslands, desember 2025.
Inga Sæland
- Innrömmuð ljóð og bókin Það sem dvelur í þögninni. Gjöf frá Valgeiri Guðjónssyni og Ástu Kristrúnu Ragnarsdóttur, janúar 2025.
- Te og bangsar. Gjöf frá sendiherra Kína á Íslandi, janúar 2025.
- Viðarlíkan af skipi. Gjöf til ráðherra frá Dr. Khalid El-Enany, frambjóðanda til aðalframkvæmdastjóra UNESCO 2025-2029, janúar 2025.
- Bókin Tæknitröll og íseldfjöll, spil, bolli og taupoki. Gjöf frá sendiherra Bretlands á Íslandi, febrúar 2025.
- Silkiprentað kort og stækkunargler í gjafakassa. Gjöf frá sendiherra Kína á Íslandi, febrúar 2025.
- Áletraður minjagripur. Gjöf frá úkraínsku þjóðinni, febrúar 2025.
- Bolli. Gjöf frá Trans Vinum, apríl 2025.
- Bókin Hringurinn í Reykjavík. Gjöf frá Kvenfélaginu Hringnum, apríl 2025.
- Bókin Íslandsstræti í Jerúsalem (á íslensku og ensku). Gjöf frá Félaginu Ísland-Palestína, maí 2025.
- Mynd, hljómplata, tvær bækur, slæða, vínflaska og taupoki. Gjöf frá skipuleggjendum á leiðtogafundi EPC í Tirana, maí 2025.
- Skartgripur úr leir. Gjöf frá forsætisráðherra Hollands, maí 2025.
- Bókin Uppruni þjóðarsáttar og aðrar hagstjórnaráskoranir. Gjöf frá Jóhanni Rúnari Björgvinssyni, maí 2025.
- Silkislæða. Gjöf frá Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, júlí 2025.
- Bókin Kynesísk hagfræðisýn. Gjöf frá Jóhanni Rúnari Björgvinssyni, júlí 2025.
- Taupoki og bækurnar Saga Stykkishólms og Veðrið vitnar um þig. Gjöf frá Stykkishólmsbæ, ágúst 2025.
- Bolur. Gjöf frá Grindavíkurbæ, september 2025.
- Hringur og bækurnar The saga of survival og A Palestinian Armenian. Gjöf frá utanríkisráðherra Palestínu, október 2025.
- Vasi. Gjöf frá Hisako Takamado prinsessu af Japan, október 2025.
- Skálasett. Gjöf frá varnarmálaráðherra Þýskalands, október 2025.
- Ulu-hnífur. Gjöf frá formanni grænlensku landsstjórnarinnar, október 2025.
- Bókin Barist fyrir veik hross. Gjöf frá Ragnheiði Jónu Þorgrímsdóttur, nóvember 2025.
- Árbækur Ferðafélags Íslands 2020 og 2021. Gjöf frá Ferðafélagi Íslands, nóvember 2025.
- Bókin The year of living Danishly. Gjöf frá forsætisráðherra Ungverjalands, nóvember 2025.
- Hvítvínsflaska. Gjöf frá sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi, desember 2025.
- Bókin Diplomatic Bluebook 2025. Gjöf frá ríkisstjórn Japans, desember 2025.
- Dagatal. Gjöf frá sendiherra Japans á Íslandi, desember 2025.
- Ostakarfa. Gjöf frá Kaupfélagi Skagfirðinga, desember 2025.
- Dagatal. Gjöf frá sendiherra Þýskalands á Íslandi, desember 2025.
- Kampavínsflaska og dagatal. Gjöf frá sendiherra Kína á Íslandi, desember 2025.
- Rauðvínsflaska. Gjöf frá sendiherra Georgíu í Kaupmannahöfn, desember 2025.
- Tímaritið Húsfreyjan, þrjú tölublöð. Gjöf frá Kvenfélagasambandi Íslands, desember 2025.
Logi Einarsson
- Bókin Handa á milli eftir Áslaugu Sverrisdóttur og tímaritið Hugur og hönd 2025 frá Heimilisiðnaðarfélaginu, í desember 2025.
- Bókin Hitamál frá Frosta Sigurjónsson eftir höfund, í desember 2025.
- 11.12.2025 - Tímaritin Tímarit Hinsegin daga 2024, Hinsegin, Tímarit Hinsegin daga 2025, Barn eða Ungmenni kemur út - Leiðarvísir fyrir fjölskyldur og ársskýrsla Samtakanna '78, 2024-2025. Gjöf frá Samtökum '78, í desember 2025.
- Vínflaska frá bandaríska sendiráðinu, í desember 2025.
- Dagatal 2026 og jólakort. Gjöf til ráðherra frá Sendiráði Japans, í desember 2025.
- Bókin epal 50 brotabrot og skrautmunur - gjöf til ráðherra frá Eyjólfi í Epal, í nóvember 2025.
- Bækur Saga af svartri geit eftir Perumal Murugan og What Gandhi Means to me an anthology Mahatma, in the words of prominent personalities from around the world frá Indverska sendiherranum, í nóvember 2025.
- Bókin The Lighthouse on the The Snake Island frá menningarráðherra Úkraínu, í nóvember 2025.
- Bolli - Gjöf til ráðherra frá Ungum Jafnaðarmönnum, í október 2025.
- Kort með textanum *Við erum margar" og konfekt kassi frá Kvennasögusafni, í október 2025.
- Bókin Danslög frá útgáfu Danslaga Jónasar - ritstjóri Atli Freyr Hjaltason, í október 2025.
- Bókin Láka Rímur höfundur Bjarki Karlsson frá höfundi, í október 2025.
- Bókin Megavott frá Sambandi Íslenska myndlistamanna, í október 2025.
- Bolur ásamt upplýsingarefni og tímariti RIFF frá RIFF, í september 2025.
- Bókin List&Hönnun frá Trausta Valssyni í september 2025.
- Ljóðabók Aðlögun eftir Þórdísi Gísladóttur í september 2025.
- Vínil plata Ljóðastund með Arnari frá Arnari Jónassyni í september 2025.
- Bókin VeiðiVinir eftir Gunnari Bender og tímaritið Sportveiðiblaðið frá Gunnari Bender í september 2025.
- Bækur Saga Stykkishólms Kauphöfn og verslunarstaður 1596-1845, Skref í rétta átt, hverju hefur vinna að umhverfisvottun sveitarfélaga á Snæfellsnesi skilað, Verðið vitnar í þig og vatasafn eftir Roni Horn frá ýmsum aðilum á ríkisstjórnarfundi sem haldinn var á Snæfellsnesi í september 2025.
- Bókin Sjáandi sálir höfundur Einar Jónsson frá Listasafni Einars Jónssonar, í ágúst 2025.
- Bókin Steyptir Draumar - líf og list frá Listasafni Samúels Jónssonar, í júlí 2025.
- Bókin Mara kemur í heimsókn höfundur Natasha S. frá Úlfari Bragasyni, í júlí 2025.
- Vínsflaska frá Tékkneska ráðherranum, í júlí 2025.
- Penni, bók, bindi, bolli og taupoki frá pólska sendiráðinu, í júlí 2025.
- Bókin Eriagisaq frá Nivi Olsen grænlenskum ráðherra, í júlí 2025.
- Bókin Íslandsstræti í Jerúsalem eftir Hjálmtýr Heiðdal - gjöf til ráðherra á fundi með Félagi Palestínu, í júlí 2025.
- Bækur Leiklist í Bolungarvík og Matti Saga af drengnum með breiða nefið, bæklingar, svartur bolur, Servíettur, taupokar og kort frá Kómedíuleikhússinu, í maí 2025.
- Taupoki frá litla Leikklúbbnum, í maí 2025.
- Bókin Ykpaiha ta ykpaihlii frá sendiherra Úkraínu, í maí 2025.
- Bækurnar Manntalið 1703, Arfur okkar allra, höfundur Eiríkur G. Guðmundsson og Danska sendingin 1928 - Den Danske aflevering 1928 frá Þjóðskjalasafni, í maí 2025.
- Landakort af Íslandi í fjörum hlutum frá Háskólanum í Greifswald, í maí 2025.
- Myndir af Sólheimajökli teiknað af Birkit Tolladóttur listamanni, Bókin Sólheimajökull - sehen und verstehen, höfundur Birgit Litterski, heimsókn í Greifwald, í maí 2025.
- Bókin PROAP - ARCHITETTURA DEL PAESAGGIO ARQUITECTURA PAISAJISTA frá landslagsarkitekt í Feneyjum, í maí 2025.
- Bæklingur fyrir sýninguna: fimmtíu plöntur fyrir frið höfundur Katrín Elvarsdóttir og bókin ESSEYJA ISLAND FICTION. Höfundur Þorgerður Ólafsdóttir, frá sendiherra og frú í Helsinki, í maí 2025.
- Geisladiskur - Essenceofnorth – PURE, bæklingur ZWISCHEN ZWEI ORTEN - ARTIST COUPLE auk veggspjalds, Poster - In the First Place - auglýsing á sýningu, höfundur Elín Jakobsdóttir. Bækur - In the Firs Place höfundur Elín Jakobsdóttir og Island, alles was Sie üBER Island wissen müssen höfundur Arthúr B Bollason, og blaðaúrklippur með Elínu Jakobsdóttur, móttaka í sendiráðsbústað í Berlín, í maí 2025.
- Taupoki, penni, landakort af Þýskalandi frá Þýska sendiráðinu, í maí 2025.
- Bækur Íslenskir blaðamenn - Sjónarmið handa blaðamannaskírteina 1-10 á 110 ára afmæli Blaðamannafélags Af lífi og Sál - Íslenskir blaðamenn III, í hörðum slag - íslenskir blaðamenn II, bæklingur Blaðamaðurinn frá Blaðamannafélagi Íslands, í apríl 2025.
- Bækur - Á elleftu stundu - I den ellevte time höfundur Kirsten Simonsen, Minnisbók með mynd af ljósmyndaalbúmi – glósubók, Valþjófsstaðahurðarinnar höfundur Blær Guðmundsdóttir, Aftur Again Conversing with Sigfús Eymundssonar höfundur Einar Falur Ingólfsson og gjafakort frá Þjóðminjasafni, í apríl 2025.
- Bæklingar Táknheimur og listsögulegt samhengi, Safnhúsið - Saga þess og byggingarlist Sýn myndhöggvarans og safnið í samtímanum, bækur Einar, Anna og safnið sem var bannað börnum höfundar Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir frá Einari Jónson, í apríl 2025..
- Bókargjöf, tólf rit eftir sjálfstætt starfandi fræðiritahöfunda sem hafa hlotið verðlaun á síðustu árum frá Hagþenki, í apríl 2025..
- Bókin Arkitektur - the norwegian review of architecture, í apríl 2025.
- Bókin Náttúruvá - Natural Hazard - Threats, Response, and Resilience, í apríl 2025.
- Bollar frá Hönnunarmiðstöðinni, í mars 2025.
Eyjólfur Ármannsson
- Vináttumerki. Gjöf frá sendiherra Bandaríkjanna, janúar 2025
- Mynd. Gjöf frá sendiherra Indlands, janúar 2025
- Box með árituðum silfurpening, askja sem inniheldur frímerki, lyklakippu, barmmerki og barmnælu og merktur minnislykill. Gjafir vegna þátttöku í alþjóðlegri ráðstefnu um umferðaröryggi í Marrakesh, febrúar 2025
- Bolli. Gjöf frá sendiherra Þýskalands, júní 2025.
- Bókin „Saga Stykkishólms – Kauphöfn og verslunarstaður 1596-1845“ eftir Ásgeir Ásgeirsson og Ólaf Ásgeirsson. Gjöf frá Stykkishólmsbæ.
- Bókin „Byggðafesta og Búferlaflutningar á Íslandi“. Gjöf frá Byggðastofnun.
- Léttvínsflaska. Gjöf frá bandaríska sendiráðinu, desember 2025.
- Almanak og merktur plastvasi. Gjöf frá japanska sendiráðinu, desember 2025.
- Léttvínsflaska og þrjár teiknimyndabækur (Mahabharata: Hin stórkostlega indverska goðsögn, Raman frá Tenali: Suðurindverski birbalinn og Mahatma Gandhi). Gjafir frá indverska sendiráðinu, desember 2025.
- Bókin Hitamál eftir Frosta Sigurjónsson. Gjöf frá höfundi, desember 2025.
Alma D. Möller
- Febrúar ´25 Fiskiroð- Kerecis
- Febrúar ´25 Brjóstagjafabók- Ljósmæðrafélag Íslands
- Febrúar ´25 Rauðvínsflaska- Ský (Skýrslutæknifélag Íslands)
- Febrúar ´25 Bókagjöf- Bæjarstjórn Reykjanesbæjar
- Mars ´25 Stuttermabolur- Félag íslenskra heimilislækna
- Mars ´25 Sokkar- Krabbameinsfélagið
Mars ´25 Stuttermabolur og bók-Einhverfusamtökin - Mars ´25 Gjafakort- Fagdeild Öldrunarhjúkrunarfræðinga, Félag öldrunarlækna og fagráð Landspítalans
- Maí´25 Stuttermabolur- Let´s Lead verkefnahópur fyrir notendur geðheilbrigðisþjónustu
- Maí´25 Glasamottur- WHO fundur í Genf
- Maí´25 Mynd- Heilbrigðisráðherra Palestínu
- Maí´25 100 ára saga Rauða krossins, fyrsta hjálp taska, dagbók, kertalugt- Rauði krossinn
- Sept.´25 Pennar- Heilbrigðisráðherra Danmerkur
- Sept.´25 Thermobrúsar- Íþróttasamband fatlaðra
- Sept.´25 Armband, endurskinsmerki, lyklakippa- Píeta samtökin
- Sept.´25 Bók, buff, lyklakippa, hálsmen- Alzheimer samtökin
- Okt. ´25 Bók- Gigtarfélagið
- Okt´25 Bókargjöf – Grafarvogssókn
- Nóv´25 Stuttermabolur og taupoki – Parkinson samtökin
- Des´25 Vínflaska- Bandaríska sendiráðið
- Des´25 Dagatal – Japanska sendiráðið
Ragnar Þór Ingólfsson
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
- Hitabolli og hleðslubanki. Gjöf frá DSACEUR, Sir Keith E. Blount, janúar 2026
- Bókamerki. Gjöf frá utanríkisráðherra Rúmeníu, janúar 2026
- Rauðvín, hnetur, hunang og te. Gjöf frá utanríkisráðherra Georgíu, janúar 2026
- Bók: The United Nations Convention on the Rights of Persons with Disabilities. Gjöf frá Öryrkjabandalaginu, febrúar 2026
- Landsliðstreyja Marokkó. Gjöf frá utanríkisráðherra Marokkó, febrúar 2026
- Ýmis glerlist, skálar og glös, vefnaður, bækur og trélist. Gjafir í heimsókn í Japan, febrúar 2026
- Pashmina. Gjöf frá hr. Sibi George, Secretary (West), Ministry of External Affairs Indlandi, mars 2026
- Bollar. Gjöf frá utanríkisráðherra Portúgal, mars 2026
- Súkkulaði og póstkort. Gjöf frá forseta sambandsþings Sviss, apríl 2026
- Keramík og kerti. Gjöf frá Oleksí Havrísj, sendiherra Úkraínu, maí 2026
- Skyrta (vyshyvanka). Gjöf frá Future for Ukraine, júní 2026
- Bók og súkkulaði. Gjöf frá úkraínska listahópnum Open Group, júní 2026
- Bolur. Gjöf frá Dr. Hans Kluge, svæðisstjóra WHO í Evrópu, júní 2026
- Mynd af Jerúsalem. Gjöf frá Mohammad Alamour, efnahagsráðherra Palestínu, júní 2026
- Silkiprent í ramma. Gjöf frá Nguyen Sinh Nhat Tan, aðstoðariðnaðar- og viðskiptaráðherra Víetnam, júní 2026
- Fjórir kassar af mangó. Gjöf frá sendiráði Indlands, júní 2026
- Innrömmuð ljóð og bókin Það sem dvelur í þögninni. Gjöf frá Valgeiri Guðjónssyni og Ástu Kristrúnu Ragnarsdóttur, janúar 2025.
- Te og bangsar. Gjöf frá sendiherra Kína á Íslandi, janúar 2025.
- Viðarlíkan af skipi. Gjöf til ráðherra frá Dr. Khalid El-Enany, frambjóðanda til aðalframkvæmdastjóra UNESCO 2025-2029, janúar 2025.
- Bókin Tæknitröll og íseldfjöll, spil, bolli og taupoki. Gjöf frá sendiherra Bretlands á Íslandi, febrúar 2025.
- Silkiprentað kort og stækkunargler í gjafakassa. Gjöf frá sendiherra Kína á Íslandi, febrúar 2025.
- Áletraður minjagripur. Gjöf frá úkraínsku þjóðinni, febrúar 2025.
- Bolli. Gjöf frá Trans Vinum, apríl 2025.
- Bókin Hringurinn í Reykjavík. Gjöf frá Kvenfélaginu Hringnum, apríl 2025.
- Bókin Íslandsstræti í Jerúsalem (á íslensku og ensku). Gjöf frá Félaginu Ísland-Palestína, maí 2025.
- Mynd, hljómplata, tvær bækur, slæða, vínflaska og taupoki. Gjöf frá skipuleggjendum á leiðtogafundi EPC í Tirana, maí 2025.
- Skartgripur úr leir. Gjöf frá forsætisráðherra Hollands, maí 2025.
- Bókin Uppruni þjóðarsáttar og aðrar hagstjórnaráskoranir. Gjöf frá Jóhanni Rúnari Björgvinssyni, maí 2025.
- Silkislæða. Gjöf frá Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, júlí 2025.
- Bókin Kynesísk hagfræðisýn. Gjöf frá Jóhanni Rúnari Björgvinssyni, júlí 2025.
- Taupoki og bækurnar Saga Stykkishólms og Veðrið vitnar um þig. Gjöf frá Stykkishólmsbæ, ágúst 2025.
- Bolur. Gjöf frá Grindavíkurbæ, september 2025.
- Hringur og bækurnar The saga of survival og A Palestinian Armenian. Gjöf frá utanríkisráðherra Palestínu, október 2025.
- Vasi. Gjöf frá Hisako Takamado prinsessu af Japan, október 2025.
- Skálasett. Gjöf frá varnarmálaráðherra Þýskalands, október 2025.
- Ulu-hnífur. Gjöf frá formanni grænlensku landsstjórnarinnar, október 2025.
- Bókin Barist fyrir veik hross. Gjöf frá Ragnheiði Jónu Þorgrímsdóttur, nóvember 2025.
- Árbækur Ferðafélags Íslands 2020 og 2021. Gjöf frá Ferðafélagi Íslands, nóvember 2025.
- Bókin The year of living Danishly. Gjöf frá forsætisráðherra Ungverjalands, nóvember 2025.
- Hvítvínsflaska. Gjöf frá sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi, desember 2025.
- Bókin Diplomatic Bluebook 2025. Gjöf frá ríkisstjórn Japans, desember 2025.
- Dagatal. Gjöf frá sendiherra Japans á Íslandi, desember 2025.
- Ostakarfa. Gjöf frá Kaupfélagi Skagfirðinga, desember 2025.
- Dagatal. Gjöf frá sendiherra Þýskalands á Íslandi, desember 2025.
- Kampavínsflaska og dagatal. Gjöf frá sendiherra Kína á Íslandi, desember 2025.
- Rauðvínsflaska. Gjöf frá sendiherra Georgíu í Kaupmannahöfn, desember 2025.
- Tímaritið Húsfreyjan, þrjú tölublöð. Gjöf frá Kvenfélagasambandi Íslands, desember 2025.
Hanna Katrín Friðriksson
- Bók til atvinnuvegaráðherra frá Ragnheiði Jónu Þorgrímsdóttur - Barist fyrir veik hross
- Gjöf til atvinnuvegaráðherra frá Bandaríska sendiráðinu - Minnispeningur og skjal
- Gjöf til atvinnuvegaráðherra frá Fornleifastofnun Íslands - Bókin Archealogica Islandica
- Bók (Stjórnkerfi búvöruframleiðslunnar og stjórnskipan Íslands) frá RÖST – Samtök um eflingu landbúnaðar og byggingar í landinu
- Dúkur – gjöf til ráðherra á ferðalagi um Japan
- Fílastyttur frá Indverska sendiráðinu
- Jólagjöf - Léttvínsflaska frá Bandaríska sendiráðinu
- Jólagjöf - Konfektkassi frá Landslögum
- Jólagjöf – Vínflaska og rit frá Indverska sendiráðinu
- Jólagjöf – Hvammshlíðardagatal frá Þýska sendiráðinu
- Jólagjöf – Dagatal frá Loftmyndum
- Sjal, gjöf til atvinnuvegaráðherra á ferðalagi í Japan sumarið 2025
- Bók frá Ámunda Loftssyni - Stjórnkerfi búvöruframleiðslunnar og stjórnskipan Íslands
- Bók um Grænland frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Grænlands
- Bók frá Öryrkjabandalagi Íslands - The United Nations Convention on the Rights of Persons with Disabilities: A Commentary
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
- Hulda áfallasagan – bók frá Karlynju Huldu Halldór Guðbjargar 26. janúar 2026
- Borðdúkur – gjöf frá KeizoTakewaka, sendiherra Japans á Íslandi, 13. febrúar 2026
- Reykjavík á tímamótum, bók í ritstjórn Bjarna Reynarssonar. Gjöf frá Ópus lögmönnum 16. janúar 2025
- Archaeologica Islandica, rit Fornleifastofnunar Íslands. Gjöf frá Fornleifastofnun Íslands 21. janúar 2025
- Kúlupenni. Gjöf frá Clarissu Duvigneau, sendiherra Þýskalands á Íslandi 8. ágúst 2025
- Tvær litlar myndir í ramma og te í postulínskrukku. Gjöf frá kínverska sendiráðinu á Íslandi í nóvember 2025
- Vínflaska og þrjú teiknimyndablöð. Gjöf frá R. Ravindra, sendiherra Indlands á Íslandi í desember 2025
- Vínflaska. Gjöf frá bandaríska sendiráðinu á Íslandi í desember 2025
- Kampavínsflaska og dagatal. Gjöf frá He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi í desember 2025
Jóhann Páll Jóhannsson
- Kampavínsflaska og dagatal 2026. Nýársgjöf sendiherra Kína á Íslandi, 19. janúar 2026.
- Bókin Ingólfur Arnarson - Arfleifð hans og Íslandssagan í nýju ljósi. Gjöf frá höfundi, 23. janúar 2026.
- Kanadískt hlynsíróp. Gjöf frá forseta kanadíska þingsins, 2. mars 2026.
- Bókin Hernaðurinn gegn landinu, Þjórsárver hjarta landsins eftir Guðmund Pál Ólafsson, innrammaðar ljósmyndir frá Dynk í Þjórsá og Þjórsárverum og bjórglas merkt Vinum Þjórsárvera. Gjöf frá Vinum Þjórsárvera, 11. mars 2026.
- Hekluð bómullartaska. Gjöf frá sendiherra Colombíu í Svíþjóð, júní 2026.
- Indverskt mango. Gjöf frá sendiráði Indlands á Íslandi, júní 2026.
- Viskí flaska, Sake - japanskt hrísgrjónavín og súkkulaðiaskja. Gjöf frá forstjóra Hokkaido Electric og stjórnarmanni Fuji Electric, 7. júlí 2026.
- Kaffibolli og mokkamolar. Gjöf fyrir þátttöku á haustráðstefnu Advania, 10. september 2026.
- Bókin Skálholt - Excavations of a Bishop's Residence and School c. 1650-1790. Volume 3: The Ecofacts and Synthesis. Gjöf frá Fornleifastofnun Íslands.
- Indverskt box fyrir pappírsþurrkur. Gjöf frá sendiherra Indlands á Íslandi, 28. september 2026.
- Innrammað minningarverk um samstarf Íslands og Suður-Kóreu um orkuskipti skipa. Gjöf frá sendinefnd frá Pohang í Suður-Kóreu, 16. september 2026.
- Tveir Awadhi silfurkertastjakar og teiknimyndasögurnar Birabal kemur til bjargar og Ramayana Valmikis. Gjöf frá Kirti Vardhan Singh utanríkisráðherra Indlands, 9. október 2026.
- Léttvínsflaska. Gjöf frá sendiráði Georgíu í Danmörku, janúar 2025.
- Húfa og vatnsbrúsi. Gjöf frá Rafal, janúar 2025.
- Bókin Ingvar Vilhjálmsson - athafnasaga. Gjöf frá Brim, febrúar 2025.
- Bókin Saga Gunnarsholts á Rangárvöllum. Gjöf frá Landi og skóg, 2025.
- Trefill. Gjöf sendinefndar frá Mongólíu, 10. mars 2025.
- Japanskur handunninn silki löber. Gjöf frá sendiherra Japans á Íslandi, 12. mars 2025.
- Bókin og borðspilið - Tæknitröll og íseldfjöll. Gjöf frá sendiherra Bretlands á Íslandi 13. mars 2025.
- Bókin The Indian Way, indverskur dúkur. Gjöf frá sendiherra Indlands á íslandi, 18. mars 2025.
- Handskorin kristalsskál. Gjöf frá aðstoðarforsætisráðherra Slóvakíu, 25. mars 2025.
- Innrömmuð ljósmynd af Seyðisfirði árituð af Davið Attenborough: Gjöf frá félagasamtökunum Vá, apríl 2025
- Hunang. Gjöf fyrir þátttöku á Polish-Nordic Business Summit 2025 í Póllandi 12. maí 2025.
- Bókin Poland - heritage and modernity, minnisbók, penni, jafnvægisspil. Gjöf í tengslum við óformlegan fund orkumálaráðherra ESB í Póllandi 12.-13. maí 2025.
- Tekanna og landakort af Þýskalandi. Gjöf frá sendiherra Þýskalands á Íslandi, 27. maí 2025.
- Mynd með teikningum af sjávarfangi og indónesískt efni fyrir sarong (pils). Gjöf frá sjávarútvegsráðherra Indonesíu.
- Juan Valdez kaffibaunir og kólumbískur minjagripur. Gjöf frá sendiherra Kólumbíu gagnvart Íslandi, 7. ágúst 2025
- Bókin Barist fyrir veik hross - frásögn úr grasrótinni. Gjöf frá höfundi Ragnheiði Jónu Þorgrímsdóttur, 12. ágúst 2025.
- Bókin Saga Stykkishólms - kauphöfn og verslunarstaður 1596-1845. Gjöf frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, 14. ágúst 2025
- Bókin Frændur fagna skógi. Gjöf frá Skógræktarfélagi Íslands, 18. ágúst 2025.
- Bókin Mold ert þú. Gjöf frá höfundi, 10. september 2025.
- Innrömmuð mynd. Gjöf frá forstjóra Matvæla og landbúnaðarstofnunar SÞ (FAO), 24. september 2025.
- Kórenskt Najeonchilgi skartgripaskrín og silkidúkur. Gjöf frá bæjarstjóra Pohang í S-Kóreu, 16. október 2025.
- Box með döðlum. Gjöd frá Dr. Lamya Fawwaz, forstjóra Zayed sjálfbærniverðlaunanna, Sameinuðu arabísku furstadæmunum á fundi í tengslum við Hringborð norðurslóða 16. október 2025.
- Vatnsbrúsi og ilmkerti. Gjöf frá Rafal ehf. fyrir þátttöku á ráðstefnu þeirra um stafrænar lausnir í orkugeiranum 22. október 2025.
- Ostar. Gjöf frá Kaupfélagi Skagfirðinga, desember 2025.
- Léttvínsflaska. Gjöf frá sendidráði Bandaríkjanna á Íslandi, desember 2025.
- Léttvínsflaska, teiknimyndasögurnar Mahatma Gandhi, Mahabharata - Hin stórkostlega indverska goðsögn, Raman frá Tenali - suðurindverski Birbalinn. Gjöf frá sendiherra Indlands á Íslandi, desember 2025.
Daði Már Kristófersson
- Löber dúkur. Gjöf frá sendiherra Japan, janúar.
- Bók: Hagstjórnaráskoranir 2023-2026, apríl.
- Meissen bolli. Gjöf frá sendinefnd Þýskalands, apríl.
- Bók: Peningar - hvað þeir eru - hvaðan þeir koma. Ólafur Margeirsson, maí
- Bók: Technology and the rise of great powers. Mikael Ekman frá Microsoft, júní.
- Silfurmerki og teikning í ramma frá Sanjay Malhotra bankastjóra Seðlabanka Indlands, júní.
- Bók: The Elgar Companion to Creating a Regenerative Economy for Wellbeing. Kristín Vala Ragnarsdóttir og Ásgeir Brynjar Torfason, júní.
- Taska - gjöf frá heilbrigðisráðherra Grænlands, Önnu Wiangenheim, ágúst.
- Vináttumerki. Gjöf frá sendiherra Bandaríkjanna, janúar 2025
- Bolli. Gjöf frá sendiherra Þýskalands, maí 2025.
- Bókin Saga Stykkishólms - kauphöfn og verslunarstaður 1596-1845. Gjöf frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, ágúst 2025.
Guðmundur Ingi Kristinsson
- Bókin Andorra al natural. Gjöf frá skipuleggjendum Smáþjóðaleikana í Andorra, maí 2025.
- Listaverkabókin Eriagisaq. Gjöf frá menntamálaráðherra Grænlands, júní 2025.
- Orðaspilastokkur í léreftspoka. Gjöf frá Mosfellsbæ, september 2025.
- Drykkjarkrús með skjaldarmerki Þýskalands ásamt penna. Gjöf frá sendiherra Þýskalands, september 2025.
Hagsmunaverðir
Samkvæmt lögum nr. 64/2020, um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands, er hagsmunavörðum, þ.e. einstaklingum sem tala máli einkaaðila gagnvart stjórnvöldum og leitast við að hafa áhrif á störf þeirra í atvinnuskyni, skylt að tilkynna forsætisráðuneytinu um sig og hlutverk sitt. Lögaðilum og fyrirtækjum er heimilt að senda tilkynningu um þá einstaklinga sem sinna hagsmunagæslu í umboði þeirra.
Trausti Hjálmarsson
Stjórnarformaður Bændasamtaka Íslands, Borgartúni 25.
Stjórnarformaður er kosinn á tveggja ára fresti, nú síðast 2024. Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi og er hans hlutverk að vera málsvari bænda og fyrirtækja í landbúnaði.Margrét Ágústa Sigurðardóttir
Framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, Borgartúni 25.
Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi og er hennar hlutverk að vera málsvari bænda og fyrirtækja í landbúnaði.Hilmar Vilberg Gylfason
Lögfræðingur Bændasamtaka Íslands, Borgartúni 25.
Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi og er hans hlutverk að vera málsvari bænda og fyrirtækja í landbúnaði.Harpa Ólafsdóttir
Hagfræðingur Bændasamtaka Íslands, Borgartúni 25.
Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi og er hans hlutverk að vera málsvari bænda og fyrirtækja í landbúnaði.Katrín Pétursdóttir
Lögfræðingur Bændasamtaka Íslands, Borgartúni 25.
Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi og er hennar hlutverk að vera málsvari bænda og fyrirtækja í landbúnaði.
María Jóna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins í 100% starfi og það ótímabundið.
Starfstöð: Borgartún 35, 105 Reykjavík.Bílgreinasambandið er samtök atvinnurekenda í sölu ökutækja, vöru og þjónustu þeim tengdum.
Félagatal: https://www.bgs.is/is/um-bgs/felagsmenn/felagatal.
Í Bílgreinasambandinu er fjöldi fyrirtækja þ.e. almenn bílaverkstæði, bílasölur, bílaumboð, hjólbarðaverkstæði, málningar- og réttingarverkstæði, ryðvarnarstöðvar, smurstöðvar, varahlutaslar og aðrir þjónustuaðilar í bílgreininni.Hlutverk:
1. Að vera í málsvari fyrir sambandsaðila um málefni bílgreinarinnar gagnvart öllum opinberum aðilum, samtökum, framleiðendum, öðrum viðskiptamönnum og almenningi.
2. Að efla og þróa bílgreinina á Íslandi, með því að: a) halda utan um stefnumörkun í málefnum bílgreinarinnar b) vinna að eflingu menntunar til aukinnar þekkingar innan bílgreinarinnar c) vinna að eflingu faglegra vinnubragða inna bílgreinarinnar d) vinna að því að viðhafðir séu réttmætir viðskiptahættir innan bílgreinarinnar e) vera í forsvari fyrir bílgreinina við gerð kjarasamninga sem stuðli að gagnkvæmum hag samningsaðila f) að stofna til, skipuleggja og halda sýningar á bifreiðum, hlutum tengdum þeim og iðnaðinum í heild
3. Að vera sambandsaðilum leiðbeinandi um gildi faglegra vinnubragða til aukinnar hagkvæmni og arðsemi í rekstri sambandsaðila.
4. Vinna að umhverfisvernd og stuðla að bættri umferðarmenningu og auknu umferðaröryggi.
5. Að láta til sín taka öll málefni sem hafa almenna þýðingu fyrir sambandsaðila og eflingu bílgreinarinnar í landinu.Bílgreinasambandið er í forsvari atvinnulífsins í menntunarmálum bílgreina, skipar m.a. í prófnefndir og fræðslunefndir í bílgreinum.
Bílgreinasambandið er í forsvari fyrir atvinnulífið í kjarasamningum bílgreinarinnar.
Félag atvinnurekenda gætir hagsmuna stórra sem smárra aðildarfyrirtækja með því að vera einarður talsmaður viðskiptafrelsis og heilbrigðrar samkeppni. Í félaginu eru fyrirtæki úr ýmsum geirum atvinnulífsins, s.s. innflutningi, útflutningi, lyfjaframleiðslu, auglýsinga- og markaðsmálum, sjávarútvegi, fræðslu og þjálfun, fjarskiptaþjónustu, flutningum, ferðaþjónustu o.fl. Félagið rekur fjögur millilandaviðskiptaráð; Íslensk-kínverska viðskiptaráðið, Íslensk-indverska viðskiptaráðið, Íslensk-taílenska viðskiptaráðið og Íslensk-evrópska verslunarráðið.
Starfsmenn sem sinna hagsmunagæzlu á vegum félagsins:
- Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri, starfsstöð í Kringlunni 7
- Guðný Hjaltadóttir lögmaður, starfsstöð í Kringlunni 7
- Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður, starfsstöð hjá MAGNA lögmönnum, Höfðabakka 9
- Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri
Jakob Falur er í fullu starfi fyrir samtökin og hefur starfsstöð á skrifstofu Frumtaka að Borgartúni 35, 105 Reykjavík, og kemur fram fyrir hönd samtakanna.
Fyrirtæki í hótel- og gistiþjónustu (FHG) er sameiginlegur vettvangur þeirra sem stunda hótel- og gistiþjónustu á Íslandi. Markmið samtakanna er m.a. að stuðla að því að atvinnugreinin búi ávallt við heilbrigt rekstrarumhverfi sem tekur mið af því samkeppnisumhverfi sem gistiþjónusta býr við hverju sinni, innanlands jafnt sem erlendis.
Formaður: Kristófer Oliversson
Varaformaður: Gyða Árný Helgadóttir
Guðmundur Ásgeirsson
Hlutverk: Formaður stjórnar. Opinber talsmaður samtakanna.
Starfið er ólaunað sjálfboðaliðastarf og viðvarandi milli árlegra aðalfunda samtakanna.Sigríður Örlygsdóttir
Hlutverk: Varaformaður stjórnar. Staðgengill formanns.
Starfið er ólaunað sjálfboðaliðastarf og viðvarandi milli árlegra aðalfunda samtakanna.Starfsstöð og lögheimili samtakanna er í Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Jafnframt er hagsmunagæslu á
vegum samtakanna að miklu leyti sinnt utan fastrar starfsstöðvar.
IATA (International Air Transport Association) er Alþjóðasamband flugfélaga.
Landssamband smábátaeigenda (LS) er samband félaga og svæðisfélaga smábátaeigenda á Íslandi. Aðildarfélög eru 15.
Samkvæmt 2. grein samþykkta félagsins er tilgangur þess að tryggja sameiginlega hagsmuni smábátaeigenda á öllum sviðum, vera opinber málsvari þeirra og stuðla að framförum á sviði fiskveiða, vöruvöndunar, öryggis- og tryggingamála og annarra mála er þá varða.
Þá skal félagið sérstaklega vera málsvari félagsmanna, svæðisfélaga og undirfélaga þeirra gagnvart stjórnvöldum og stjórnvaldsaðgerðum er lúta að fiskveiðum, öryggismálum, tryggingamálum, málefnum vöruvöndunar og eftirlits og félagslegum réttindum.
Til að tryggt sé að LS geti fylgt eftir þessum markmiðum er formanni og framkvæmdastjóra heimilt, að fengnu samþykki stjórnar, að höfða hvers konar dómsmál á framangreindum sviðum í nafni LS til þess að gæta hagsmuna svæðisfélaga, undirfélaga innan svæðisfélaga, félagsmanna og einstakra félagsmanna.
Heimild þessi nær einnig til að áfrýja dómi til Hæstaréttar Íslands og þeirra dómstóla erlendis er fjalla um mannréttindamál.
Arthur Bogason, formaður LS
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri LS
Hlutverk hagsmunavarðanna er viðvarandi meðan þeir gegna framangreindum störfum fyrir LS.
Starfsstöð og lögheimili LS er að Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík.
Landssamband ungmennafélaga (LUF) er samstarfs- og samráðsvettvangur frjálsra ungmennafélaga og veitir stjórnvöldum ráðgjöf og aðhald í málefnum ungs fólks.
LUF starfar sjálfstætt óháð pólitískum, trúarlegum eða efnahagslegum þrýstingi. LUF vinnur að sameiginlegum hagsmunamálum ungs fólks og frjálsra ungmennafélaga. LUF er málsvari þeirra gagnvart opinberum aðilum og alþjóðlegum stofnunum og hefur heimild til aðgerða, m.a. málshöfðunar, til verndar heildarhagsmunum ungs fólks.
LUF vinnur að því að efla ungmennastarf og umræðu um málefni ungs fólks á Íslandi og er fulltrúi aðildarfélaga í margvíslegu erlendu samstarfi.
Starfsstöð félagsins er á Laugavegi 176, 105 Reykjavík.
Hagsmunaverðir sem starfa í umboði Landssambands ungmennafélaga (LUF):
- Geir Finnsson, forseti LUF.
Forseti LUF er kjörinn á aðalfundi félagsins til eins árs í senn. Forseti kemur fram fyrir hönd félagsins út á við. Starfið er tilfallandi sjálfboðastarf til ársins 2024.
- Eva Brá Önnudóttir, varaforseti LUF.
Varaforseti LUF er kjörinn á aðalfundi félagsins til eins árs í senn. Varaforseti kemur fram fyrir hönd félagsins í fjarveru forseta. Starfið er tilfallandi sjálfboðastarf til ársins 2024.
- Tinna Isebarn, framkvæmdastjóri LUF.
Framkvæmdastjóri LUF er ráðinn ótímabundið. Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur félagsins í samræmi við ákvarðanir stjórnar. Starfið er viðvarandi.
- Sigurður Helgi Birgisson, lögmaður LUF.
Lögmaður LUF er ráðinn ótímabundið. Lögmaður félagsins annast hagsmunagæslu félagsmanna og aðildarfélaga. Starfið er viðvarandi.
- Viktor Ingi Lorange, verkefna- og samskiptastjóri LUF.
Verkefna- og samskiptastjóri LUF er ráðinn ótímabundið. Starfið er viðvarandi.
Landssamtök skógareigenda eru aðildarfélag Bændasamtaka Íslands.
Tilgangur Landssamtaka skógareigenda er:
1. Að sameina alla skógarbændur landsins í ein búgreinasamtök.
2. Að bæta aðstöðu skógræktar sem atvinnugreinar í sem víðustum skilningi, bændastéttinni til hagsbóta.
3. Að vera samtök og málsvari þeirra sem stunda skógrækt á bújörðum.
4. Að annast samskipti og samningagerð fyrir hönd félagsmanna við opinbera aðila eða aðra þá sem þeir óska. Einnig við hliðstæð samtök erlendis.
5. Að hvetja til rannsókna og fræðslu atvinnugreininni til hagsbóta.
6. Að leita leiða til að koma afurðum skógarins í verð.Stjórnarmenn eru kjörnir á árlegum aðalfundi sem haldinn skal fyrir 1. Nóvember ár hvert til eins árs í senn. Stjórn ræður framkvæmdastjóra sem annast umsjón með daglegum rekstri og heldur á prókúru. Framkvæmdastjóri er ráðinn ótímabundið. Formaður, varaformaður og gjaldkeri eru skráð sem raunverulegir eigendur.
Félagið hefur aðsetur í Bændahöllinni við Hagatorg, 107 Reykjavík.Stjórn:
Jóhann Gísli Jóhannsson, formaður
Sigrún Hrönn Þorsteinsdóttir, varaformaður
Guðmundur Rúnar Vífilsson, gjaldkeri
Björn Bjarndal Jónsson, ritari
Naomi Bos, meðstjórnandi
Framkvæmdastjóri: Hlynur Gauti Sigurðsson
- Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar
- Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Landssamtakanna þroskahjálpar
Eftirtaldir aðilar sinna hagsmunagæslu Lífsvirðingar:
- Ingrid Kuhlman, formaður stjórnar
- Bjarni Jónsson, gjaldkeri
- Hrefna Guðmundsdóttir, meðstjórnandi
- Steinar Harðarson, meðstjórnandi
- Sylviane Lecoultre, meðstjórnandi
Stjórnarseta og starf fyrir Lífsvirðingu er ólaunað.
- Breki Karlsson, formaður
- Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ. Starfsstöð er í Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Formaður er kosinn til tveggja ára í senn, síðast 2021. Hlutverkið er viðvarandi launað starf í 100% starfshlutfalli.Bergþór Heimir Þórðarson, varaformaður ÖBÍ. Starfsstöð er í Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Varaformaður er kosinn til tveggja ára í senn, síðast 2020. Hlutverkið er viðvarandi launað starf í 50% starfshlutfalli.Eva Þengilsdóttir, framkvæmdastjóri ÖBÍ. Starfsstöð er í Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Framkvæmdastjóri er ráðin ótímabundið í 100% starfshlutfalli. Hlutverkið er viðvarandi.Bandalagið samanstendur af 41 aðildarfélagi fatlaðs fólks, öryrkja, einstaklinga með langvinna sjúkdóma og aðstandenda þeirra. Aðildarfélögin eru hagsmunasamtök ólíkra fötlunarhópa sem öll starfa á landsvísu. Hvert og eitt er með sérþekkingu á sínu sviði og veita margskonar fræðslu og stuðning. Samanlagður félagafjöldi þeirra er um 36 þúsund manns.
Hlutverk ÖBÍ, og þar með skráðra hagsmunavarða þess, er að koma fram fyrir hönd fatlaðs fólks gagnvart opinberum aðilum í hverskyns hagsmunamálum svo sem varðandi löggjöf, framkvæmd hennar og í dómsmálum er snerta rétt þess. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) er leiðarljós í starfi bandalagsins.
- Kristján Þórður Snæbjarnarson
- Margrét Halldóra Arnarsdóttir
Hlutverk Samáls, Samtaka álframleiðenda á Íslandi, er að vinna að hagsmunum og framþróun íslensks áliðnaðar og efla upplýsingastreymi og fræðslu um áliðnaðinn.
- Guðríður Eldey Arnardóttir er framkvæmdastjóri Samáls.
- Samál hefur aðsetur í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík.
Samband garðyrkjubænda er aðildarfélag Bændasamtaka Íslands.
Markmið Sambands garðyrkjubænda eru, samkvæmt 3. grein samþykkta félagsins:
- Að vera málsvari garðyrkjunnar og gæta hagsmuna hennar á innlendum sem erlendum vettvangi.
- Að stuðla að hvers konar fræðslu- og rannsóknarstarfsemi í garðyrkju.
- Að gæta hagsmuna félagsmanna í kjarasamningum, búvörusamningum og öðrum samningum við opinbera aðila.
- Að gæta þess að rekstrarumhverfi garðyrkjunnar verði sem best á hverjum tíma.
- Að vera þjónustuvettvangur fyrir sameiginlega hagsmuni félagsmanna allra og einstakra hópa innan félagsins, eftir eðli máls hverju sinni.
Stjórnarmenn eru kjörnir á árlegum aðalfundi sem haldinn skal fyrir lok apríl, til eins árs í senn. Stjórn ræður framkvæmdastjóra sem annast umsjón með daglegum rekstri og heldur á prókúru. Framkvæmdastjóri er ráðinn ótímabundið. Stjórn skráð sem raunverulegir eigendur.
Félagið hefur aðsetur í Bændahöllinni við Hagatorg, 107 Reykjavík.
Stjórn:
- Axel Sæland, formaður
- Helga Ragna Pálsdóttir, varaformaður
- Óskar Kristinsson
- Sigrún Hrafnhildur Pálsdóttir
- Þórhallur Bjarnason
Varastjórn:
- Óli Björn Finnsson
- Ragna Sigurðardóttir
Framkvæmdastjóri: Katrín María Andrésdóttir
- Hagsmunaverðir Samiðnar hafa það hlutverk að koma fram fyrir hönd aðildarfélaga og deilda iðnaðarmanna sem eiga aðild að Samiðn.
- Hilmar Harðarson, formaður stjórnar
- Elmar Hallgríms Hallgrímsson, framkvæmdastjóri
- Starfsstöð og lögheimili Samiðnar er að Stórhöfða 31, 110 Reykjavík.
Kristín Linda Árnadóttir, formaður Samorku
Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku
Starfsstöð Samorku er að Borgartúni 35, 105 Reykjavík.
Megintilgangur Samorku er að starfrækja trúverðugan,fræðandi og jákvæðan vettvang um starfsemi og hagsmuni orku- og veitufyrirtækja og styrkja þannig stöðu þeirra og rekstur, í þágu samfélagsins. Samtökin hafa samskipti við stjórnvöld varðandi laga- og reglugerðarumhverfi orku- og veitufyrirtækja og veita umsagnir um mál sem snerta þau.
Samorka eru samtök orku- og veitufyrirtækja um allt land. Vegna fjölbreytileika aðildarfyrirtækjanna eru hagsmunirnir fjölbreyttir. Starf hagsmunavarða felst í að hafa jákvæð áhrif á starfsumhverfi aðildarfyrirtækja og stuðla að því að þau geti sinnt sínu mikilvæga hlutverki fyrir samfélagið.
Hlutverk hagsmunavarðanna er viðvarandi, á meðan þeir gegna framangreindum störfum fyrir Samorku.
Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Starfsstöð Samtaka atvinnulífsins er að Borgartúni 35, 105 Reykjavík.
Hlutverk hagsmunavarða SA er að sinna hagsmunagæslu fyrir Samtaka atvinnulífsins og aðildarsamtök þeirra sem eru Samorka – Samtök orku- og veitufyrirtækja, Samtök ferðaþjónustunnar (SAF), Samtök fjármálafyrirtækja (SFF), Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), Samtök iðnaðarins (SI) og SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ). Yfir 2000 fjölbreytt fyrirtæki eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins og aðildarsamtökum þeirra.
Vegna fjölda og fjölbreytileika aðildarfyrirtækja SA eru hagsmunirnir að baki fjölbreyttir. Starf hagsmunavarða er að meginstefnu til fólgið í að hafa mótandi áhrif á starfsumhverfi atvinnulífsins og stuðla að samkeppnishæfum og arðsömum atvinnurekstri, líkt og m.a. er tilgangur samtakanna skv. 2. gr. samþykkta þeirra.
Hlutverk hagsmunavarðanna er viðvarandi, á meðan þeir gegna framangreindum störfum fyrir Samtök atvinnulífsins.
Ágúst Elvar Bjarnason
Verkefnastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.Baldur Arnar Sigmundsson
Lögfræðingur Samtaka ferðaþjónustunnar.Gunnar Valur Sveinsson
Verkefnastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.Jóhannes Þór Skúlason
Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.Skapti Örn Ólafsson
Upplýsingafulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar.Vilborg Helga Júlíusdóttir
Hagfræðingur Samtaka ferðaþjónustunnar .Starfsstöð Samtaka ferðaþjónustunnar er í Borgartúni 35, 105 Reykjavík.
Samtök ferðaþjónustunnar – SAF - gæta hagsmuna ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi. Innan samtakanna starfar fjölbreyttur hópur fyrirtækja í ýmsum geirum. Auk stjórnar starfa innan SAF átta fagnefndir; afþreyinganefnd, bílaleigunefnd, flugnefnd, ferðasskrifstofunefnd, hópbifreiðanefnd, gististaðanefnd, siglingarnefnd og veitinganefnd. Allar nánari upplýsingar um SAF er að finna á heimasíðu samtakanna – www.saf.is
Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri SFF
Elvar Orri Hreinsson, sérfræðingur í greiningum
Jóna Björk Guðnadóttir, yfirlögfræðingur
Kristín Lúðvíksdóttir, verkefnastjóri fjármálafræðslu
Margrét Arnheiður Jónsdóttir, lögfræðingur
Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur
Sjá aðildarfyrirtæki SFF: https://sff.is/um-okkur/adildarfelog/
Eftirtaldir aðilar eru hagsmunaverðir Samtaka fyrirtækja í landbúnaði:
- Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri SAFL. Margrét starfar einnig sem sérfræðingur hjá Mjólkursamsölunni ehf.
- Sigurjón R. Rafnsson, formaður SAFL. Sigurjón starfar einnig sem aðstoðarkaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Skagfirðinga.
Hlutverk hagsmunavarða Samtaka fyrirtækja í landbúnaði er viðvarandi, á meðan þeir gegna framangreindum störfum fyrir SAFL.
- Starfsstöð Samtaka fyrirtækja í landbúnaði er að Bitruhálsi 1, 110 Reykjavík.
Meðal þess sem Samtök fyrirtækja í landbúnaði fást við er:
- Að efla ímynd og styrkja samkeppnisstöðu íslensks landbúnaðar.
- Að stuðla að hagkvæmni íslensks landbúnaðar og íslenskra landbúnaðarfyrirtækja.
- Að vera í forsvari gagnvart stjórnvöldum í málum er snerta hagsmuni og réttindi félagsmanna.
- Að efla skilning og ímynd og stuðla að upplýstri umræðu um íslenskan landbúnað.
- Að taka þátt í alþjóðasamstarfi og gæta hagsmuna íslensks landbúnaðar á erlendum vettvangi.
- Að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna.
- Að styðja við nýsköpun og menntun tengda landbúnaði.
- Að vinna að eflingu rannsókna og sjálfbærni íslensks landbúnaðar.
Ólafur Marteinsson, formaður SFS
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS
Starfsstöð SFS er að Borgartúni 35, 105 Reykjavík, Ólafur Marteinsson, formaður SFS er jafnframt framkvæmdastjóri Ramma hf. Gránugata 1-3, 580 Fjallabyggð. Hlutverk hagsmunavarðanna er viðvarandi, á meðan þeir gegna framangreindum störfum fyrir SFS.
Fjölbreytt fyrirtæki í sjávarútvegi og fiskeldi eiga aðild að samtökunum. Samkvæmt samþykktum Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi er tilgangur samtakanna að gæta hagsmuna íslenskra fyrirtækja í sjávarútvegi með því:
- stuðla að hagkvæmni íslensks sjávarútvegs og íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja,
- styðja við nýsköpun og menntun tengda sjávarútvegi,
- efla skilning og ímynd og stuðla að upplýstri umræðu um íslenskan sjávarútveg,
- taka þátt í alþjóðasamstarfi og gæta hagsmuna íslensks sjávarútvegs á erlendum vettvangi,
- vera í forsvari gagnvart stjórnvöldum í málum er snerta hagsmuni og réttindi félagsmanna,
- gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna,
- vinna að eflingu hafrannsókna og sjálfbærri nýtingu auðlinda hafsins og
- efla ímynd og styrkja samkeppnisstöðu íslensks sjávarútvegs á erlendum mörkuðum.
Hlutverk samtakanna er að:
- Efla samstarf aðildarfélaga, standa vörð um hagsmuni þeirra og vinna að bættum starfsskilyrðum.
- Stuðla að árangursríku samstarfi við heilbrigðisyfirvöld, sveitarfélög, félagasamtök og aðra þá aðila sem hagsmuna eiga að gæta.
- Koma á framfæri við stjórnvöld og almenning afstöðu samtakanna til mála er varða hagsmuni aðildarfélaga og fylgja þeim fram.
- Gangast fyrir upplýsinga- og fræðslustarfsemi m.a. í því skyni að stuðla að framförum og hagræðingu í starfsemi og rekstri aðildarfélaga.
Þeir sem sinna hagsmunagæslu fyrir samtökin eru:
- María Fjóla Harðardóttir
Stjórnarformaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Stjórnarformaður er kosinn á tveggja ára fresti, nú síðast í apríl 2022. Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi (þann tíma sem hún er formaður) og er að vera málsvari fyrirtækja í velferðarþjónustu.
- Sigurjón Norberg Kjærnested
Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi og er að vera málsvari fyrirtækja í velferðarþjónustu. Sigurjón er talsmaður SFV og ber ábyrgð á rekstri samtakanna.
- Gunnhildur Erla Kristjánsdóttir
Aðstoðarframkvæmdastjóri og yfirlögfræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi og er hann staðgengill framkvæmdastjóra.
- Karl Sigurðsson
Greinandi hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi.
- Heiða Vignisdóttir
Lögfræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi.
- Lovísa Árnadóttir
Veitir ráðgjöf í kynningarmálum í hlutastarfi fyrir Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu. Hlutverk hagsmunavarðar er ekki viðvarandi og er breytilegt eftir stöðu verkefna.
- Skrifstofur SFV eru að Brúnavegi 5, 105 Reykjavík.
Sigurður Hannesson, framkvæmdarstjóri Samtaka iðnaðarins
Árni Sigurjónsson, formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins
Starfsstöð Samtaka iðnaðarins er að Borgartúni 35, 105 Reykjavík.
Samtök iðnaðarins vinna að hagsmunum iðnaðarins á öllum sviðum og í nánu samráði við þau 1400 fyrirtæki og félög sjálfstæðra atvinnurekenda sem eru innan samtakanna.
Meðal þess sem Samtök iðnaðarins fást við er að:
• Þjóna íslenskum iðnaði og gæta hagsmuna hans á innlendum og erlendum vettvangi
• Hafa áhrif á stefnu stjórnvalda, fjármálastofnana, opinberra stofnana og annarra sem tengjast starfsemi iðnaðarins, með það að markmiði að íslenskum fyrirtækjum verði búin starfsaðstaða sem gerir þau samkeppnishæf á innlendum og erlendum mörkuðum, án hindrana og með arðbærum hætti.
• Fylgjast vel með alþjóðlegri samningagerð á vegum opinberra aðila og aðstoða þá við að meta þá þætti slíkra samninga er varða hagsmuni iðnaðarins hér á landi og á erlendum mörkuðum.
• Eiga samstarf við hliðstæð samtök erlendis og vera aðilar að alþjóðasamtökum þeirra til þess að fylgjast betur með og hafa áhrif á þróun atvinnulífs, starfsskilyrði og viðskipti á alþjóðavettvangi.
• Leggja áherslu á að menntun starfsfólks og stjórnenda í iðnaði sé eins góð og kostur er og að hún stuðli að eðlilegri tækniþróun og falli að þörfum hans.
• Stuðla að félagslegum, faglegum og efnahagslegum framförum í iðnaði með upplýsinga- og fræðslustarfsemi meðal sinna félaga m.a. um breytingar og túlkun á lögum og reglum sem snerta iðnaðinn hér á landi og á alþjóðavettvangi. Standa fyrir margvíslegri fag- og sérfræðiþjónustu við félaga sína m.a. á sviði markaðsmála, nýsköpunar, gæðamála og framleiðslu með útgáfu fræðsluefnis og kynningar- og fræðslufundum.
• Vinna að viðskipta- og hagrannsóknum til þess að fylgjast með starfsskilyrðum iðnaðarins og samanburði við aðrar greinar atvinnulífsins innanlands og erlendis.
• Gæta hagsmuna iðnaðarins við kjarasamningsgerð Samtaka atvinnulífsins.
• Vera málsvari sinna félagsaðila út á við og álykta fyrir þá varðandi mál sem varða hagsmuni þeirra og opinbera umfjöllun.
• Vinna að almennri kynningu á íslenskum iðnaði og hvetja með aðgerðum sínum almenning og opinbera aðila til þess að nýta innlenda framleiðslu að öðru jöfnu.
• Standa vörð um hagsmuni félagsmanna og koma fram fyrir þeirra hönd gagnvart opinberum aðilum og öðrum stofnunum, samtökum og fyrirtækjum í þeim málum sem hagsmuni þeirra varða. Í því felst m.a. að samtökin geta komið fram fyrir hönd félagsmanna, eins eða fleiri, fyrir dómstólum og stjórnsýslunefndum í málum sem varða sameiginlega jafnt sem einstaklingsbundna hagsmuni þeirra.
Jón Ólafur Halldórsson, formaður SVÞ
Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ
Íris Hannah Atladóttir, hagfræðingur SVÞ
Kristinn Már Reynisson, lögfræðingur SVÞ
Ragna Vala Kjartansdóttir, skrifstofustjóri fræðslumála SVÞ
Rúna Magnúsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri SVÞ
Hagsmunaverðir SVÞ koma fram fyrir hönd aðildarfyrirtækja SVÞ en félagatal samtakanna má finna á eftirfarandi vefsíðu: https://svth.is/felagatal/
Björn Brynjúlfur, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands
Ari Fenger, stjórnarformaður Viðskiptaráðs Íslands
Viðskiptaráð er með starfsstöð í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík.
Ofangreindir hagsmunaverðir sinna viðvarandi verkefnum hjá Viðskiptaráði Íslands á meðan þeir gegn framangreindum störfum hjá ráðinu og sinna þeir hagsmunagæslu í samræmi við tilgang og lög þess.
Hlutverk og tilgangur Viðskiptaráðs er að gæta hagsmuna viðskiptalífsins, efla skilning á mikilvægi frjálsræðis í viðskiptum, lágmörkun opinberra afskipta, hagfellds skattaumhverfis og annarra þátta er miða að því að auka samkeppnishæfni Íslands.