Haraldur Jónasson / Hari

Skipulagsmál

Meðal mikilvægra markmiða stjórnvalda er að vernda líf og heilsu manna, eignir og umhverfi. Stjórnvöldum ber einnig að stuðla að skynsamlegri og hagkvæmri nýtingu lands og huga jafnframt að þörfum landsmanna, heilbrigði og öryggi. Þá er sjálfbær þróun ætíð leiðarljós í stefnu stjórnvalda í skipulags- og byggingarmálum.

Til þess að svo megi verða er fagmennska lykilatriði við undirbúning mannvirkjagerðar og skipulagsgerð en einnig þarf stefnumótun, skýrt regluverk, leiðbeiningar og skilvirkt og samræmt eftirlit. Þær stofnanir sem vinna að þessum málum eru Skipulagsstofnun og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.