Umhverfi og náttúruvernd

Umhverfis- og náttúruverndarmál hafa undanfarin ár og áratugi orðið æ fyrirferðarmeiri stjórnsýsluverkefni, bæði alþjóðlega sem og á innlendum vettvangi.  Um allan heim hafa ríki heims aukið við löggjöf og reglusetningu varðandi þessa málaflokka til að tryggja að það sem mannkyn byggir afkomu sína á – jörðin, umhverfið og náttúran – verði ekki fyrir þeim skaða að tilveru mannsins sé ógnað.

Á Íslandi er það umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið sem fer með stærstan hluta þeirra málaflokka sem snúa að umhverfi og náttúruvernd. Í eðli sínu eru þessir málaflokkar þó þverfaglegir þar sem þeir koma inn á flesta þætti mannlegs lífs og því heyra þeir í mörgum tilfellum undir fleiri ráðuneyti eða krefjast samvinnu þvert á ráðuneyti.

Verkefni á sviði umhverfis og náttúruverndar heyra undir eftirfarandi málefnasvið í gildandi fjármálaáætlun:

  • Umhverfismál
Sjá einnig: