Upplýsingatæknimál ríkisins

Umbætur í ríkisrekstri fela í sér ábyrgð á upplýsingatæknirekstri ríkisins, stafrænni umbreytingu ríkisaðila og nýsköpun hjá hinu opinbera. Fjármála- og efnahagsráðuneytið fer fyrir umbótum í ríkisrekstri. Verkefnastofa um Stafrænt Ísland er hluti af ráðuneytinu og er þar unnið að því að bæta stafræna þjónustu hins opinbera. Áherslur í umbótum birtast í fjármálaáætlun ár hvert og er þeim fylgt eftir í áherslum í ríkisrekstri sem eru hluti af fjárveitingarbréfum til ríkisaðila.

Stafræn stefna hins opinbera