Innleiðing Microsoft Copilot hjá íslenska ríkinu
Unnið er að samræmdri innleiðingu Microsoft Copilot hjá ríkisstofnunum með það að markmiði að efla starfsfólk, auka skilvirkni og styðja við ábyrga notkun gervigreindar í opinberri þjónustu. Verkefnið er hluti af sameiginlegu átaki ríkisins til að byggja upp þekkingu, tryggja öryggi og samræma nálgun við nýtingu gervigreindar.
Innleiðingin er fyrst og fremst umbreytingarverkefni sem byggir á virkri þátttöku stjórnenda og starfsfólks, markvissri fræðslu og góðri gagna- og aðgangsstýringu. Áhersla er lögð á að ný verkfæri styðji við daglegt starf, bæti gæði vinnu og spari tíma — en komi ekki í stað mannlegrar dómgreindar.
Innleiðing verður stigvaxandi og byggð á þörfum stofnana. Samhliða sem undanfari innleiðingar er unnið að mati á tæknilegu umhverfi, öryggi og gagnastjórnun til að tryggja trausta og ábyrga notkun frá upphafi.
Fræðsla og stuðningur
Í tengslum við innleiðinguna verður boðið upp á:
- Grunnfræðslu fyrir alla ríkisstarfsmenn um notkun gervigreindar, öryggi og gagnrýna hugsun
- Hlutverkamiðaða þjálfun fyrir ólíka starfshópa
- Stuðning við breytingastjórnun og upptöku nýrra vinnubragða.
Sameiginleg þekking og verkfæri
Þessi síða mun þróast áfram samhliða verkefninu og verða miðpunktur upplýsinga fyrir ríkisstarfsmenn. Hér verður m.a. að finna:
Tímalína innleiðingarverkefnis fyrir rekstrarumhverfi
Upplýsingar um framvindu innleiðingar
Svör við algengum spurningum
Dagskrá og skráningu á námskeið
Verkfærakistu fyrir stofnanir, þar á meðal stefnumótunargögn, ávinningsmat og leiðbeiningarMarkmið og mælikvarðar
Markmiðið er að byggja upp sameiginlegt lærdómssamfélag þar sem stofnanir deila reynslu og góðum dæmum.
Væntingar og næstu skref
Innleiðing Copilot fer fram í áföngum og verður innleidd í samræmi við undirbúning, þarfir og forgangsröðun stofnana. Nánari upplýsingar um tímasetningar og aðgengi verða birtar á þessu upplýsingasvæði eftir því sem verkefnið þróast.
Fyrirspurnir og ábendingar má gjarnan senda á [email protected]