Upplýsingar úr málaskrám ráðuneyta
Birting að frumkvæði stjórnvalda
Þann 1. janúar 2021 tók í gildi breyting á upplýsingalögum nr. 140/2012 varðandi birtingu upplýsinga að frumkvæði stjórnvalda.
Skv. 2. mgr. 13. gr. laganna er nú ráðuneyti í Stjórnarráði Íslands skylt að birta upplýsingar úr málaskrám sínum með rafrænum hætti. Að lágmarki ber að birta skrá yfir mál sem eru til meðferðar í ráðuneyti í tilefni af innsendu eða útsendu erindi þar sem tilgreint er málsnúmer og heiti máls.
Jafnframt segir í 3. mgr. 13. gr sömu laga að ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um það hvernig birtingu upplýsinga skuli hagað, þar með talið hvar og hvernig upplýsingar skuli birtar, sjá nánar í reglugerð um birtingu upplýsinga að frumkvæði stjórnvalda nr. 464/2018.
Til að sjá lista yfir mál, smelltu á viðkomandi ráðuneyti og Excel-skjal vistast hjá þér. Ný mál hvers mánaðar eru á sér blaði (e. sheet) í Excel skjalinu.
2026
Atvinnuvegaráðuneytið
2025
2024
2023
2022
Innviðaráðuneytið (frá febrúar 2022)
Menningar- og viðskiptaráðuneytið
(frá febrúar 2022)