Neytendamál

Neytendamál eru, eðli málsins samkvæmt, málaflokkur sem hríslast víða um stjórnkerfið. Hefðbundin skilgreining á neytenda er þegar einstaklingur kaupir vöru og þjónustu, án þess að kaupin séu liður í atvinnustarfsemi hans, af söluaðila sem selur vöruna eða þjónustuna í atvinnuskyni. Neytendamál eru þau mál sem falla undir þessa lýsingu og gefur því að skilja að nánast allar ríkisstofnanir sem sjá um opinbert eftirlit með viðskiptum og atvinnustarfsemi eiga við neytendamál beint eða óbeint.

Neytendastofa

Neytendastofa vinnur beint að hagsmunum neytenda á Íslandi. Stofnunin sér um opinbert eftirlit með neytendatengdum lögum, t.d. lögum um viðskiptahætti og markaðssetningu, pakkaferðir, neytendalán, fasteignalán til neytenda og neytendasamninga. Ýmsar aðrar ríkisstofnanir sjá um eftirlit með neytendatengdum málum með beinum eða óbeinum hætti og má þar nefna Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands, Fjarskiptastofu og Samgöngustofu (t.d. varðandi réttindi flugfarþega).

Neytendasamtökin

Neytendasamtökin hafa verið starfrækt frá árinu 1953 og vinna samtökin að réttindum neytenda á marga vegu. Samtökin hafa til dæmis rekið leiðbeiningar- og kvörtunarþjónustu.

Hagsmunasamtök heimilanna

Hagsmunasamtök heimilanna leggja sérstaka áherslu á réttindi  neytenda á fjármálamarkaði.

Verkefni á sviði neytendamála heyra meðal annars undir eftirfarandi málefnasvið í gildandi fjármálaáætlun:

  • Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla innanríkismála
Sjá einnig: