08 janúar 2026

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Innviðaráðuneytið

Skýrara regluverk og bætt réttindi neytenda vegna gjaldtöku á bílastæðum

{image.Description}
Þórunn Anna Árnadóttir forstjóri Neytendastofu, Hanna Katrín Friðriksson atvvinuvegaráðherra og Runólfur Ólafsson fluttu erindi á morgunverðarfundi um eflingu neytendaverndar vegna gjaldskyldu á bílastæðum.

Húsfyllir var á morgunverðarfundi atvinnuvegaráðherra sem haldinn var 8. janúar um eflingu neytendaverndar vegna gjaldtöku á bílastæðum.

Auk erindis Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra fluttu þau Þórunn Anna Árnadóttir forstjóri Neytendastofu og Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB erindi.

Á fundinum var farið yfir núverandi stöðu varðandi gjaldtöku á bílastæðum og kynntar þær aðgerðir sem unnið er að á vegum stjórnvalda eða eru fram komnar og sem ætlað er að bæta neytendavernd.

 

Atvinnuvegaráðherra mælti fyrir frumvarpi til nýrra markaðssetningarlaga í nóvember sl.

Atvinnuvegaráðherra mælti fyrir frumvarpi til nýrra markaðssetningarlaga í nóvember sl.

„Við vitum og heyrum að neytendur hafa kvartað yfir viðskiptaháttum á gjaldskyldum bílastæðum, skorti á upplýsingum, merkingum og handahófskenndri framkvæmd“ sagði atvinnuvegaráðherra í sínu ávarpi. „Við töldum því ástæðu til að kanna þessi mál nánar og frá því í haust höfum við verið með gjaldtökumál á bílastæðum til sérstakrar skoðunar í góðu samstarfi við innviðaráðuneytið og Neytendastofu. Við höfum m.a. farið yfir þessi mál á fundum með Neytendasamtökunum, FÍB, Fjármálaeftirlitinu og Samtökum iðnaðarins og aflað upplýsinga frá nágrannalöndum okkar um fyrirkomulag þar.“ Í nóvember sl. mælti atvinnuvegaráðherra fyrir frumvarpi til nýrra markaðssetningarlaga. Frumvarpið felur m.a. í sér heildarendurskoðun á lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Í frumvarpinu eru þrjú atriði sem munu nýtast við að ná betur utan um fyrirkomulag gjaldtöku á bílastæðum út frá hagsmunum neytenda

  • Efling Neytendastofu og aukið sjálfstæði stofnunarinnar.  

  • Öflugri og skýrari sektarheimildir Neytendastofu.

  • Skýrari ákvæði um óhæfilega samningsskilmála, t.d. ef vangreiðslugjald er margfalt hærra en fjárhæð upprunalegrar gjaldskyldu eða óraunhæfir frestir eru til greiðslu bílastæðagjalds.

Að auki er unnið að sérstakri heimasíðu um gjaldskyld bílastæði á landsvísu auk breytingar á reglugerð varðandi umferðarmerki sem er á forræði innviðaráðuneytis.

 

Þórunn Anna Árnadóttir forstjóri fór yfir aðgerðir Neytendastofu og leiðbeiningar fyrir gjaldskyld bílastæði.

Þórunn Anna Árnadóttir forstjóri fór yfir aðgerðir Neytendastofu og leiðbeiningar fyrir gjaldskyld bílastæði.

Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri fjallaði um gjaldtöku á bílastæðum eins og hún snýr að FÍB.

Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri fjallaði um gjaldtöku á bílastæðum eins og hún snýr að FÍB.

Langtímamarkmið stjórnvalda er að setja heildstætt regluverk sem nær yfir alla lykilþætti gjaldskyldu á bílastæðum s.s. upplýsingagjöf, merkingar og innheimtu gjalda. Í því skyni hefur atvinnuvegaráðuneytið, í samvinnu við innviðaráðuneyti og Neytendastofu, m.a. horft til sérstakrar reglusetningar í Noregi og Danmörku sem nær utan um framangreinda þætti.