14 apríl 2026
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Lækkun eldsneytisgjalda skili sér beint til neytenda
Í frumvarpi um tímabundið ákvæði til bráðabirgða við lög um virðisaukaskatt er ráðgert að söluaðilar eldsneytis tryggi að sú tímabundna lækkun á skatthlutfalli virðsaukaskatts, sem frumvarpið kveður á um skili sér að fullu til neytenda í endanlegu útsöluverði eldsneytis.
Eftirlit verður falið Samkeppniseftirlitinu í samstarfi við verðlagseftirlit Alþýðusamband Íslands, Neytendastofu og Félag íslenskra bifreiðaeigenda. Fylgst verður með útsöluverði eldsneytis og kallað eftir gögnum frá söluaðilum eldsneytis með reglubundnum hætti.
Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að stjórnvöld hafi ákveðin tímabundin úrræði ef eftirlit leiðir í ljós að lækkun virðisaukaskatts skili sér ekki til neytenda sem er grunnforsenda aðgerðarinnar.Tímabundnar aðgerðir geta t.d. falist í ákvörðun hámarksverðs eða hámarksálagningu. Bráðabirgðaákvæðið mun gilda frá 1. maí n.k. til 31. ágúst. Markmiðið er að lækka eldsneytisverð og draga úr kostnaði heimila og fyrirtækja.