Um verkefnið

Unnið er að samræmdri innleiðingu Microsoft Copilot hjá ríkisstofnunum með það að markmiði að efla starfsfólk, auka skilvirkni og styðja við ábyrga notkun gervigreindar í opinberri þjónustu. Verkefnið er hluti af sameiginlegu átaki ríkisins til að byggja upp þekkingu, tryggja öryggi og samræma nálgun við nýtingu gervigreindar.

Innleiðingin er fyrst og fremst umbreytingarverkefni sem byggir á virkri þátttöku stjórnenda og starfsfólks, markvissri fræðslu og góðri gagna- og aðgangsstýringu. Áhersla er lögð á að ný verkfæri styðji við daglegt starf, bæti gæði vinnu og spari tíma — en komi ekki í stað mannlegrar dómgreindar.

Innleiðing verður stigvaxandi og byggð á þörfum stofnana. Samhliða sem undanfari innleiðingar er unnið að mati á tæknilegu umhverfi, öryggi og gagnastjórnun til að tryggja trausta og ábyrga notkun frá upphafi.

Í tengslum við innleiðinguna verður boðið upp á:

  • Grunnfræðslu fyrir alla ríkisstarfsmenn um notkun gervigreindar, öryggi og gagnrýna hugsun
  • Hlutverkamiðaða þjálfun fyrir ólíka starfshópa
  • Stuðning við breytingastjórnun og upptöku nýrra vinnubragða

Athugið að þessi upplýsingasíða er og verður í þróun samhliða innleiðingu Copilot hjá ríkisaðilum. Allar ábendingar um hvað betur megi fara, hvað megi missa sín og hvað vantar má gjarnan senda á [email protected].