Laun og starfskjör forstöðumanna og laun samkvæmt sérákvæðum í lögum

Laun og starfskjör forstöðumanna

Laun og önnur starfskjör forstöðumanna ríkisstofnana eru ákveðin af fjármála- og efnahagsráðherra í samræmi við 39.gr. a laga nr. 70/1996.

Launafyrirkomulag forstöðumanna ríkisstofnanaLaun samkvæmt sértækum ákvörðunum (PDF)*

Laun samkvæmt sérákvæðum í lögum*

Ákveðnir embættismenn, dómarar og þjóðkjörnir fulltrúar fá laun skv. sérákvæðum í lögum. Í eftirfarandi töflum er að finna sundurliðaðar upplýsingar um heildarlaun þeirra. Töflurnar sýna núgildandi heildarlaun.

Laun þjóðkjörinna fulltrúa á Alþingi eru ákvörðuð skv. lögum um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað nr. 88/1995. Á vef Alþingis eru upplýsingar um þingfararkaup. Upplýsingar um sundurliðun launa og kostnaðargreiðslna þingmanna eru einnig aðgengilegar á vefsvæði Alþingis.

*Tölurnar eru birtar með fyrirvara. Fjárhæðir eru samkvæmt upplýsingum frá Fjársýslu ríkisins. Síðan var uppfærð í júlí 2025.

Sjá upplýsingar fyrir stjórnendur og mannauðsfólk hjá ríkinu á mannauðstorgi á Ísland.is.