Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

27 febrúar 2017

/

Dómsmálaráðuneytið

Dómsmálaráðherra heimsótt iLandhelgisgæsluna

{image.Description}
Dómsmálaráðherra heimsótti Landhelgisgæsluna og kynnti sér meðal annars starfsemi flugdeildarinnar.

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra heimsótti Landhelgisgæslu Íslands á dögunum og fræddist um starfsemi hennar bæði í aðalstöðvunum í Skógarhlíð og hjá flugdeildinni í flugskýlinu á Reykjavíkurflugvelli. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og samstarfsmenn hans tóku á móti ráðherra og fylgdarliði.

Heimsókn ráðherra hófst í stjórnstöð Gæslunnar þar sem Georg Kr. Lárusson, Ásgrímur L. Ásgrímsson og Auðunn F. Kristinsson sögðu frá helstu þáttum starfseminnar. Stjórnstöðin er björgunarstjórnstöð sjófarenda og loftfara en hún er jafnframt samhæfingaraðili fyrir alla starfsemi Landhelgisgæslunnar. Stjórnstöðin sinnir allri neyðarsímsvörun fyrir Landhelgisgæsluna og boðar gæslueiningar og viðbragðsaðila í útköll, samhæfir verkefni þeirra og sér um fjarskipti. Þá leit ráðherra við í sjómælingardeildinni og hjá sprengjusveitinni.

Ráðherra þáði svo boð Gæslunnar um stutt útsýnisflug yfir Reykjavík þar sem þyrluáhöfn TF-LÍF kynnti starfsemi sína í verki.

„Þetta var afar gagnleg heimsókn. Starfsemi Landhelgisgæslunnar er umfangsmikil og ein af grunnstöðum ríkisins en þarna starfa færir sérfræðingar með margvíslegan bakgrunn. Ég hlakka til samstarfsins við þá alla,“ sagði dómsmálaráðherra að lokinni heimsókninni.