Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
06 apríl 2017
/
Forsætisráðuneytið
Aðhald, ábyrgð og efnahagsstjórn – 2. fundur Þjóðhagsráðs
Þjóðhagsráð kom til fundar í dag til að fjalla um stöðu efnahagsmála og samspil opinberra fjármála við peningastefnu og kjaramál. Í ráðinu eiga nú sæti forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, umhverfis- og auðlindaráðherra, Seðlabankastjóri, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Á fundinum var rætt um meginlínur í opinberum fjármálum til næstu fimm ára, stöðu vinnu við nýtt vinnumarkaðslíkan, kjarasamninga á árinu og árangur og áskoranir peningastefnunnar. Fundargerð af þessum fundi verður aðgengileg eins fljótt og unnt er.
Meðfylgjandi er efni sem kynnt var á fundinum frá fjármála- og efnahagsráðherra og Seðlabankastjóra auk greinargerðar sem Hallgrímur Snorrason, fyrrum hagstofustjóri, tók saman um launatölfræði í Noregi og á Íslandi.
- Greinargerð um launatölfræði í Noregi og á Íslandi
- Efni frá fjármála og efnahagsráðherra
- Efni frá Seðlabankastjóra