Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

16 júní 2017

/

Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra fundar með forsætisráðherra Slóvakíu

{image.Description}
Forsætisráðherra Íslands, Bjarni Benediktsson, ásamt forsætisráðherra Slóvakíu, Robert Fico
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, átti hádegisverðarfund í dag með Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu. Utanríkisráðherrar og fjármálaráðherrar beggja landa tóku þátt í fundinum. Á fundi sínum fóru þeir yfir góð samskipti Íslands og Slóvakíu og ræddu m.a. um stjórnmálaástandið, stöðu efnahagsmála, vinnumarkaðsmál og viðskiptamál. Þá var útganga Bretlands úr Evrópusambandinu til umfjöllunar og rætt um samvinnu Íslands og Slóvakíu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, Atlantshafsbandalagsins og Öryggis- og Samvinnustofnunar Evrópu.

Forsætisráðherra Slóvakíu ásamt fylgdarliði, er í stuttri heimsókn á Íslandi og heldur af landi brott á morgun 17. júní.