Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

27 október 2017

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Samið við Hafnarfjörð um kaup á Suðurgötu 14

{image.Description}
Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra og Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, undirrituðu samninginn.

Fjármála- og efnahagsráðherra undirritaði í gær fyrir hönd ríkissjóðs kaupsamning við Hafnarfjarðarbæ um Suðurgötu 14 í Hafnarfirði, þar sem ríkisskattstjóri var áður með starfsemi.

Um er að ræða tæplega 1300 fermetra húseign og hyggst Hafnarfjarðarbær nýta húsnæðið fyrir vinnustað og þjónustu fyrir fatlað fólk, auk annarrar starfsemi sem rúmast getur í húsinu.

Kaupverð eignarinnar er 256 milljónir og verður húsnæðið afhent 1. nóvember samkvæmt samningnum.