Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

30 nóvember 2017

/

Forsætisráðuneytið

Ríkisráðsfundir á Bessastöðum í dag

{image.Description}
Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til tveggja funda á Bessastöðum í dag. Hefst fyrri fundurinn kl. 13:30 þar sem ráðuneyti Bjarna Benediktssonar lýkur störfum. Seinni fundurinn hefst kl. 15:00 þar sem forseti Íslands mun skipa fyrsta ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur.