Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
02 mars 2018
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Heilbrigðisráðuneytið
Alma Dagbjört Möller skipuð landlæknir
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Ölmu Dagbjörtu Möller nýjan landlækni frá 1. apríl næstkomandi. Alma verður fyrst kvenna til að gegna þessu embætti hér á landi. Umsækjendur um stöðuna voru sex og var Alma önnur tveggja sem lögskipuð hæfnisnefnd mat hæfasta.
Alma er með sérfræðiviðurkenningu og doktorsgráðu í svæfinga- og gjörgæslulækningum, meistarapróf í stjórnun heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu og sérfræðiviðurkenningu í heilbrigðisstjórnun. Hún hefur frá árinu 2014 verið framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landspítala háskólasjúkrahúss og um árabil var hún yfirlæknir á gjörgæsludeildum Landspítalans í Fossvogi og við Hringbraut. Á árunum 1993* – 2002 starfaði Alma við Háskólasjúkrahúsið í Lundi í Svíþjóð og gegndi þar stjórnunarstörfum á svæfingadeildum, auk þess að starfa sem sérfræðingur á gjörgæsludeild barna við sjúkrahúsið.
Að mati hæfnisnefndar uppfyllir Alma mjög vel skilyrði starfsins um læknisfræðimenntun, þekkingu á sviði lýðheilsu, kröfum um víðtæka reynslu og menntun á sviði stjórnunar í heilbrigðisþjónustu og reynslu af rekstri og stefnumótun: „Ferill hennar ber vitni um metnað, leiðtogahæfileika, leikni í mannlegum samskiptum og færni í að koma sýn og stefnu í framkvæmd, oft við flóknar aðstæður“ segir í mati nefndarinnar. Þar segir einnig að Alma sé reynslumikill og farsæll stjórnandi með góða innsýn og reynslu af rekstri. Hún leggi mikla áherslu á gæða- og öryggismál og noti hugmyndafræði gæðastjórnunar í störfum sínum. Yfirsýn og þekking hennar á heilbrigðiskerfinu sé afar góð og hún hafi skýra og metnaðarfulla sýn á hlutverk og þróun Embættis landlæknis.
Skipað er í embætti landlæknis samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu að fengnu mati hæfnisnefndar sem starfar á grundvelli laga um heilbrigðisþjónustu. Skipunartíminn er fimm ár. Landlæknir skal hafa sérmenntun í læknisfræði, þekkingu á sviði lýðheilsu og víðtæka reynslu eða menntun á sviði stjórnunar.
*Leiðrétting: Í upphaflegri tilkynning ráðuneytisins stóð frá 1999 - 2002 en hið rétta er 1993 - 2002 (leiðrétt 5.03.2018).