Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
03 maí 2018
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Breyting á reglugerð um sveinspróf
Breyting á reglugerð um sveinspróf hefur tekið gildi en bætt hefur verið nýjum málslið í reglugerð nr. 698/2009 sem heimilar nemendum sem eiga innan við 10% ólokið af vinnustaðanámi sínu próftöku til sveinsprófs, samkvæmt neðangreindum viðmiðum mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
Viðmið um umfang vinnustaðanáms sem má vera ólokið þegar sveinspróf er þreytt, sbr. 1. mgr. 3. gr. reglugerðar um sveinspróf nr. 698/2009.
|
Lengd vinnustaðanáms: |
Má vera ólokið: |
Dæmi um námsbraut: |
|
24 vikur |
3 vikur |
Kjólasaumur, rafeindavirkjun |
|
32 vikur |
3 vikur |
Bílamálun |
|
40 vikur |
4 vikur |
Snyrtifræði |
|
48 vikur |
5 vikur |
Bifvélavirkjun |
|
52 vikur |
5 vikur |
Hársnyrtiiðn |
|
60 vikur |
6 vikur |
Rennismíði, stálsmíði |
|
72 vikur |
7 vikur |
Húsasmíði, rafvirkjun |
|
80 vikur |
8 vikur |
Framreiðsla |
|
96 vikur |
10 vikur |
Pípulagnir |
|
120 vikur |
12 vikur |
Veggfóðrun og dúkalögn |
|
126 vikur |
12 vikur |
Matreiðsla |
Þessa breytingu á reglugerð um sveinspróf (nr. 698/2009) má sjá í reglugerð nr. 430/2018.