Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

15 maí 2018

/

Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra og borgarstjóri funduðu um Borgarlínuverkefnið

{image.Description}
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra, í forsætisráðuneytinu í dag.

Efni fundarins var staða undirbúnings við Borgarlínuverkefnið en borgarstjóri kynnti hana fyrir forsætisráðherra, sem og næstu skref í samtali ríkis og borgar um samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Þau ræddu mikilvægi þess að góð samstaða tækist um framhaldið þannig að hefja megi formlegar viðræður ríkisins og Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um fjármögnun Borgarlínu og annarra framkvæmda á næstu árum.