Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

29 maí 2018

/

Innviðaráðuneytið

Framlög Jöfnunarsjóðs til eflingar tónlistarnámi 2018-2019

{image.Description}
Haraldur Jónasson / Hari

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun framlaga til eflingar tónlistarnámi og jöfnunar á aðstöðumun nemenda skólaárið 2018-2019.

Úthlutunin, sem nemur 530 milljónum króna, fer fram á grundvelli 2. mgr. 1. gr. reglna um framlög vegna hljóðfæranáms á framhaldsstigi og söngnáms á mið- og framhaldsstigi.