Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
06 júní 2018
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Skýrari hagtölur um menntamál
Ákveðin hugtakanotkun tengd menntamálum á Íslandi hefur verið nokkuð á reiki en unnið er að því að samræma hana, ekki síst til þess að varpa skýrara ljósi á þróun málaflokksins og styðja við árangursmælingar. Liður í því er að mennta- og menningarmálaráðuneytið og Hagstofa Íslands hafa nú sammælst um hugtakanotkun sína um brotthvarf þar sem mismunandi mælingar fá nú lýsandi heiti. Með þessu verður unnt að aðgreina mælingar á einfaldan hátt sem stuðlar að markvissari umræðu um brotthvarf.
Þrír helstu flokkar brotthvarfs sem notaðir eru við mælingar:
|
Heiti |
Skilgreining |
|
Árgangsbrotthvarf
Á ensku: cohort rate. |
Mælir námsframvindu innritunarárgangs eftir ákveðið tímabil t.d. 4, 6 og 7 ár eftir fyrstu innritun í framhaldsskóla. Það er hversu stór hluti hefur horfið frá námi (er ekki í námi og ekki útskrifaðir), er enn í námi og útskrifaðir. Til útskrifaðra teljast þeir sem hafa verið brautskráðir úr námi á framhaldsskólastigi sem er a.m.k. 2 ár að lengd (ISCED 3). Birt af OECD/Hagstofu Íslands |
|
Snemmbært brotthvarf
Á ensku: status rate, early school leavers, early leavers from education and training. |
Hlutfall mannfjöldans á aldrinum 18-24 ára sem hefur ekki lokið prófi á framhaldsskólastigi sem er a.m.k. 2 ár að lengd (er með grunnmenntun eða lægri menntun, ISCED 0, 1, eða 2) og er ekki skráð í nám eða starfsþjálfun (e. education or training). Birt af Eurostat/Eurydice |
|
Árlegt brotthvarf úr framhaldsskóla Á ensku: event rate, annual rate, incidence rate. |
Brotthvarf úr framhaldsskóla á skólaári: Fjöldi nemenda í aðalskóla sem hættir í þeim skóla án þess að útskrifast og fór ekki í annan skóla / Heildarfjöldi nemenda í aðalskóla 5 vikum eftir skólabyrjun. Ný mæling |