Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
14 nóvember 2018
/
Heilbrigðisráðuneytið
Reglugerð um verkefni vísindasiðanefndar til umsagnar
Drög að reglugerð heilbrigðisráðherra um verkefni vísindasiðanefndar, samkvæmt lögum um vísindarannsóknir, hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Markmið reglugerðarinnar er að kveða nánar á um verkefni nefndarinnar og um heimild hennar til að setja sér starfsreglur. Umsagnarfrestur er til 26. nóvember næstkomandi.