Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
21 desember 2018
/
Heilbrigðisráðuneytið
Umsækjendur um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands
Fjórir umsækjendur eru um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands sem auglýst var laust til umsóknar í nóvember.
Umsækjendur eru:
- Kristín Sigríður Þórarinsdóttir, hjúkrunarfræðingur,
- Einar Örn Thorlacius, lögfræðingur
- Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Skúli Þórðarson, stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur
Heilbrigðisráðherra mun skipa í embættið að undangengnu mati hæfnisnefndar á umsækjendum. Nefndin starfar á grundvelli laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007.