Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
21 desember 2018
/
Heilbrigðisráðuneytið
Umsækjendur um embætti heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
Sjö umsækjendur eru um embætti heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sem auglýst var laust til umsóknar í nóvember.
Umsækjendur eru:
- Ástríður Sigþórsdóttir, heilbrigðisritari
- Baldur Þórir Guðmundsson, viðskiptafræðingur
- Guðný Birna Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur B. Sc., MPA í Opinberri Stjórnsýslu
- Gunnar Alexander Ólafsson, hagfræðingur og stjórnmálafræðingur
- Markús Ingólfur Eiríksson, PhD í endurskoðun
- Ólafur Þór Ólafsson, stjórnmálafræðingur, MPA í Opinberri Stjórnsýslu
- Sigurður Hjörtur Kristjánsson, læknir
Heilbrigðisráðherra mun skipa í embættið að undangengnu mati hæfnisnefndar á umsækjendum. Nefndin starfar á grundvelli laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007.