Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

18 janúar 2019

/

Innviðaráðuneytið

Utanríkisráðuneytið

Samkomulag við japönsk yfirvöld greiðir fyrir beinum flugsamgöngum

{image.Description}
Við undirritun samkomulags um að greiða skuli fyrir beinum flugsamgöngum milli Íslands og Japans.

Sendinefnd utanríkisráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis áttu viðræður við fulltrúa samgönguráðuneytis Japans í Tókýó í gær um gagnkvæm loftferðasamskipti.

Á fundinum náðist samkomulag sem greiðir fyrir beinu áætlunarflugi milli Íslands og Japans, auk frekari möguleikum á leiguflugi. Jafnframt var ákveðið að löndin skyldu ræða áfram um mögulegan loftferðasamning milli landanna.

Að auki áttu fulltrúar íslenskra flugrekenda fundi með japönskum flugfélögum. Á þeim fundum kom fram vilji til aukins samstarfs.