Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
28 janúar 2019
/
Heilbrigðisráðuneytið
Tilkynning vegna sameiginlegs norræns útboðs á lyfjum
Útboðsgögn vegna sameiginlegs lyfjaútboðs norskra, danskra og íslenskra stjórnvalda hafa verið birt í drögum á vef danska lyfjainnkaupasambandsins Amgros. Mögulegum bjóðendum er gefinn kostur á að gera athugasemdir við útboðsgögnin. Frestur til athugasemda rennur út 6. mars næstkomandi.
Vakin er athygli á tilkynningu þessa efnis sem birt hefur verið vef Landspítalans.