Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

26 mars 2019

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Tryggingastofnun flytur í Hlíðasmára

{image.Description}
Tryggingastofnun opnar í Hlíðarsmára 11 þann 1. apríl

Tryggingastofnun  flytur frá Laugavegi í Hlíðasmára 11 í Kópavogi. Vegna fluninganna verður lokað fimmtudaginn 28. mars og föstudaginn 29. mars. Opnað verður á nýjum stað mánudaginn 1. apríl með betra aðgengi og nægum bílastæðum. 

Vakin er athygli á tr.is, Mínum síðum og umboðum hjá sýslumönnum um land allt.