Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
13 maí 2019
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Umsækjendur um embætti skólameistara Menntaskólans í Kópavogi
Umsóknarfrestur um embætti skólameistara Menntaskólans í Kópavogi rann út föstudaginn 30. apríl sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust níu umsóknir um embættið, frá fjórum konum og fimm körlum.
Umsækjendur eru:
Ágústa Elín Ingþórsdóttir skólameistari,
Ásgeir Þór Tómasson fagstjóri,
Einar Hreinsson forstöðumaður,
Erla Björk Þorgeirsdóttir verkefnisstjóri,
Guðríður Eldey Arnardóttir framhaldsskólakennari,
Guðrún Erla Sigurðardóttir framhaldskólakennari ,
Helgi Kristjánsson aðstoðarskólameistari ,
Lúðvík Marinó Karlsson og
Ólafur Haukur Johnson framkvæmdastjóri.
Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í embættið til fimm ára frá og með 1. ágúst 2019, sbr. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 90/2008 og laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.