Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

30 ágúst 2019

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Félags- og barnamálaráðherra heimsækir ríkissáttasemjara

{image.Description}
Ráðherra lýsti ánægju sinni með störf ríkissáttasemjara í kringum kjarasamningana á almennum vinnumarkaði í vor.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, heimsótti Bryndísi Hlöðversdóttur ríkissáttasemjara í vikunni. Fóru þau yfir stöðu þeirra aðgerða sem heyra undir félagsmálaráðuneytið í tengslum við lífskjarasamningana frá því í vor. Aðgerðirnar snúa meðal annars að húsnæðismarkaðnum og félagslegum undirboðum. Vinna við þær er vel á veg komin og munu fjölmörg frumvörp þeim tengd líta dagsins ljós á næsta þingi.

Ásmundur Einar lýsti ánægju sinni með störf ríkissáttasemjara í kringum samningana á almennum vinnumarkaði og sagði þá fela í sér einar mestu kjarabætur sem orðið hafa í kjarasamningum í seinni tíð. "Ríkissáttasemjari átti stóran þátt í að leiða þær til lykta og verður ánægjulegt að sjá þær koma til framkvæmda á næstu vikum og mánuðum."