Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

05 september 2019

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Umsækjendur um embætti skólameistara FVA

{image.Description}
Umsóknarfrestur um embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi rann út 1. september sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust fjórar umsóknir um embættið.

Umsækjendur eru:
Ágústa Elín Ingþórsdóttir, skólameistari
Steinunn Inga Óttarsdóttir, sérfræðingur hjá Félagi framhaldsskólakennara
Steingrímur Benediktsson, framhaldsskólakennari
Þorbjörg Ragnarsdóttir, aðstoðarskólameistari.

Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í embættið til fimm ára frá og með 1. janúar 2020, sbr. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 90/2008 og laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.