Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

03 október 2019

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Skrifstofustjóri á skrifstofu stefnumótunar og fjárlagagerðar

{image.Description}

Auður B. Árnadóttir hefur verið skipuð í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu stefnumótunar og fjárlagagerðar í mennta- og menningarmálaráðuneyti. Embættið var auglýst laust til umsóknar í sumar og sóttu níu um stöðuna. Auður er viðskiptafræðingur að mennt og hefur starfað á skrifstofu fjárlagagerðar frá árinu 1997, fyrst sem sérfræðingur en síðar deildarstjóri og staðgengill skrifstofustjóra. Auður hefur gegnt ýmsum störfum fyrir mennta- og menningarmálaráðuneyti og unnið að áherslum þess á ýmsum sviðum, m.a. vegna breyttra aðstæðna í atvinnu- og efnahagsmálum, þátttöku ríkisins við uppbyggingu og rekstur margskonar verkefna og komið að samningagerð, þarfagreiningum og úttektum á málefnasviðum þess.