Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

07 október 2019

/

Innviðaráðuneytið

Utanríkisráðuneytið

Sigurður Ingi fundaði með forseta og varaforseta Norðurlandaráðs

{image.Description}
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherrra, fundaði í dag með forseta og varaforseta Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, fundaði í dag með Hans Wallmark, forseta Norðurlandaráðs og Gunillu Carlsson, varaforseta ráðsins. Á fundinum var rætt um fjárveitingar til norræns samstarfs árið 2020 innan vébanda Norrænu ráðherranefndarinnar en venju samkvæmt hefur Norðurlandaráð áhrif á þær á ári hverju.

Einnig var rætt um nýja framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar sem samþykkt var á fundi forsætisráðherra Norðurlandanna í ágúst sl. en hún kveður á um að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims fyrir árið 2030.

Ísland gegnir í ár formennsku í Norrænu ráðherranefndinni. Á formennskuárinu hefur verið lögð áhersla á málefni ungs fólks, sjálfbæra ferðaþjónustu og málefni hafsins, auk þess sem loftslagsmálin voru sett í öndvegi í stefnumótun um nýja framtíðarsýn.