Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

05 nóvember 2019

/

Dómsmálaráðuneytið

Kosningaréttur Íslendinga búsettra erlendis

{image.Description}
Haraldur Jónasson / Hari

Íslenskir ríkisborgarar sem hafa haft lögheimili í útlöndum lengur en í 8 ár, hafa flutt frá Íslandi fyrir 1. desember 2011 verða að sækja um til Þjóðskrár Íslands um að verða teknir á kjörskrá. Umsókn þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Umsækjandi verður að hafa íslenskan ríkisborgararétt.
  • Umsækjandi verður að vera 18 ára eða eldri á kjördag.
  • Umsækjandi þarf einhvern tíma á ævinni að hafa átt lögheimili á Íslandi.

Fullnægjandi umsókn þarf að hafa borist Þjóðskrá Íslands fyrir 1. desember 2019. Sé umsókn fullnægjandi verður umsækjandi skráður á kjörskrá til næstu fjögurra ára á eftir. 

Allir íslenskir ríkisborgarar sem hafa haft lögheimili í útlöndum skemur en í 8 eru sjálfkrafa með kosningarétt á Íslandi. Þeir þurfa að vera orðnir 18 ára á kjördag og hafa einhvern tíma átt lögheimili á Íslandi.

Nánari  upplýsingar má finna vef Þjóðskrár Íslands.