Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
13 desember 2019
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Niðurstaða úthlutunar á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið janúar til júní 2020
Þriðjudaginn 3. desember sl. rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 978/2019 fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2020.
Samtals bárust 22 gild tilboð í tollkvótann.
Nautgripakjöt í vörulið 0102/0202. Tólf tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á nautgripakjöti, samtals 522.000 kg. á meðalverðinu 180 kr./kg. Hæsta boð var 750 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tíu fyrirtækjum um innflutning á 273.500 kg. á meðalverðinu 331 kr./kg.
Svínakjöt í vörulið 0203. Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á svínakjöti, samtals 825.000 kg. á meðalverðinu 128 kr./kg. Hæsta boð var 240 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 350.000 kg. á meðalverðinu 188 kr./kg.
Alifuglakjöt, í vörulið 0207. Fjórtán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, samtals 1.134.500 kg á meðalverðinu 128 kr./kg. Hæsta boð var 496 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 428.000 kg á meðalverðinu 262 kr./kg.
Alifuglakjöt lífrænt ræktað/lausagöngu, í vörulið ex0207. Fimm tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, lífrænt ræktað/lausagöngu, samtals 227.000 kg á meðalverðinu 59 kr./kg. Hæsta boð var 161 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 100.000 kg á meðalverðinu 134 kr./kg.
Kjöti og ætir hlutar af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;... í vörulið 0210. Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á kjöti og ætum hlutum af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;..., samtals 125.500 kg. á meðalverðinu 80 kr./kg. Hæsta boð var 349 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá níu fyrirtækjum um innflutning á 50.000 kg. á meðalverðinu 200 kr./kg.
Ostar og ystingur í vörulið 0406. Fimmtán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 301.500 kg. á meðalverðinu 508 kr./kg. Hæsta boð var 810 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tólf fyrirtækjum um innflutning á 152.500 kg. á meðalverðinu 719 kr./kg.
Ostur og ystingur úr vörulið ex0406;...(**). Þrettán umsóknir bárust um tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi úr vörulið ex 0406...(**) samtals 479.000 kg. Á grundvelli 5. gr. reglugerðar nr. 978/2019 er tollkvóta úr vörulið ex0406 úthlutað með hlutkesti og er hámark úthlutunar til hvers fyrirtækis 15% af heildarmagni tollkvótans. Samtals var úthlutað 92.500 kg., til níu fyrirtækja.
(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.
Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti.... í vörulið 1601. Þrettán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á pylsum og þess háttar vörum úr kjöti.... á vörulið 1601, samtals 239.800 kg. á meðalverðinu 87 kr./kg. Hæsta boð var 450 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tólf fyrirtækjum um innflutning á 125.000 kg. á meðalverðinu 167 kr./kg.
Annað kjöt...., unnið eða varið skemmdum.. í vörulið 1602. Fimmtán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti..., á vörulið 1602, samtals 441.000 kg. á meðalverðinu 139 kr./kg. Hæsta boð var 551 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá ellefu fyrirtækjum um innflutning á 200.000 kg. á meðalverðinu 239 kr./kg.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:
Kjöt af nautgripum, nýtt, kælt eða fryst, 0201/0202
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
10.000 |
Aðföng |
|
15.000 |
Ásbjörn Ólafsson ehf |
|
4.000 |
Danól ehf |
|
150.000 |
Ekran ehf |
|
25.000 |
Innnes ehf |
|
4.500 |
Kjarnafæði ehf |
|
25.000 |
Kjötmarkaðurinn ehf |
|
18.000 |
Krónan ehf |
|
10.000 |
Samkaup sf |
|
12.000 |
Sælkeradreifing ehf |
Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst, 0203
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
6.000 |
Ásbjörn Ólafsson ehf |
|
50.000 |
Ekran ehf |
|
500 |
Innnes ehf |
|
20.000 |
Kjarnafæði ehf |
|
10.000 |
Krónan hf |
|
175.500 |
Mata ehf |
|
88.000 |
Sláturfélag Suðurlands |
Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, 0207
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
100.000 |
Aðföng hf |
|
80.224 |
Ekran ehf |
|
20.000 |
Innnes ehf |
|
67.276 |
Mata ehf |
|
48.000 |
Reykjagarður ehf |
|
100.000 |
Stjörnugrís ehf |
|
12.500 |
Sælkeradreifing ehf |
Kjöt af alifuglum nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu ex0207
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
100.000 |
Ekran ehf |
Kjöt og ætir hlutar af dýrum.. 0210
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
10.000 |
Aðföng hf |
|
1.000 |
Ásbjörn Ólafsson ehf |
|
15.000 |
Ekran ehf |
|
800 |
Garri ehf |
|
5.000 |
Innnes ehf |
|
8.000 |
Krónan hf |
|
2.700 |
Mata ehf |
|
1.000 |
Stjörnugrís ehf |
|
6.500 |
Sælkeradreifing ehf |
Ostur og ystingur 0406
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
30.000 |
Aðföng |
|
20.000 |
Danól ehf |
|
2.100 |
Garri ehf |
|
15.000 |
Innnes ehf |
|
4.000 |
Krónan ehf |
|
500 |
Market ehf |
|
1.900 |
Mini Market ehf |
|
10.000 |
Mjólkursamsalan |
|
60.000 |
Natan &Olsen |
|
2.000 |
Nautica ehf |
|
5.000 |
Samkaup sf |
|
2.000 |
Sælkeradreifing ehf |
Ostur og ystingur ex 0406 Úthlutun á gr.v. 5. gr. reglugerðar nr. 978/2019
|
Úthlutað magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
13.875 |
Aðföng |
|
2.000 |
Danól ehf |
|
13.875 |
Innnes ehf |
|
13.875 |
Krónan ehf |
|
13.875 |
Mata ehf |
|
13.875 |
MS |
|
5.000 |
Nautica ehf |
|
5.000 |
Stjörnugrís ehf |
|
11.125 |
Vínnes ehf |
Pylsur og þess háttar vörur 1601
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
12.000 |
Aðföng |
|
2.500 |
Ekran ehf |
|
235 |
Garri ehf |
|
1.735 |
Innnes ehf |
|
2.346 |
Kjarnafæði ehf |
|
5.000 |
Krónan ehf |
|
18.000 |
Market ehf |
|
28.468 |
Mata ehf |
|
39.916 |
Mini market ehf |
|
2.000 |
Samkaup hf |
|
10.000 |
Stjörnugrís ehf |
|
2.800 |
Sælkeradreifing ehf |
Annað kjöt, hlutar úr dýrum.. 1602
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
68.500 |
Aðföng |
|
20.000 |
Danól ehf |
|
5.000 |
Ekran ehf |
|
2.500 |
Garri ehf |
|
10.000 |
Innnes ehf |
|
2.000 |
Market ehf |
|
22.000 |
Mini Market ehf |
|
9.000 |
Nautica ehf |
|
20.000 |
Samkaup sf |
|
18.000 |
Stjarnan ehf |
|
23.000 |
Sælkeradreifing ehf |