Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
Ása Ólafsdóttir og Sandra Baldvinsdóttir í Landsrétt
Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að setja Ásu Ólafsdóttur, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, og Söndru Baldvinsdóttur, héraðsdómara, í embætti dómara við Landsrétt vegna leyfa tveggja skipaðra dómara. Hefur Ása verið sett í embætti frá 25. febrúar til 30. júní 2020 og Sandra frá 2. mars til 30. júní 2020.