Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

12 maí 2020

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Myndband um barnavernd aðgengileg á níu tungumálum

{image.Description}
Félags- og fjölskyldumál

Myndband sem félagsmálaráðuneytið lét vinna og hvetur almenning til að hafa augun opin og hringja í 112 og láta vita ef áhyggjur af barni vakna, hefur nú verið þýtt yfir á níu tungumál. Verkefnið er hluti af aðgerðum til að tryggja betra aðgengi að upplýsingum og leiðbeiningum fyrir innflytjendur sem tala ekki íslensku, en þeir eru um 12,5% af þjóðinni. Myndböndin eru aðgengileg á pólsku, ensku, arabísku, persnesku, kúrdísku, spænsku, litháensku, rússnesku og tælensku.

Myndböndin má nálgast á YouTube síðu ráðuneytisins.