Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

14 maí 2020

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu, stafrænar flíkur og vatnavellíðan meðal styrkþega Hönnunarsjóðs

{image.Description}
Rán Flygenring
Í ljósi aðstæðna var ekki hægt að hafa úthlutun í tengslum við ársfund Hönnunarmiðstöðvar með tilheyrandi mannfögnuði eins og tíðkast hefur. Í staðinn teiknaði Rán Flygenring þessa lýsandi mynd af styrkafhendingunni sem ekki fór fram. Hér má sjá styrkþega ásamt Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur ráðherra og Birnu Bragadóttur formanni stjórnar Hönnunarsjóðs.

Hönnunarsjóður  hefur úthlutað 26 styrkjum til ólíkra verkefna á vegum hönnunar og arkitektúrs. Að þessu sinni voru 25 milljónum úthlutað en alls bárust 126 umsóknir um 237 milljónir.

Um metfjölda umsókna var að ræða í þessari úthlutun Hönnunarsjóðs og ljóst að ástandið í kjölfar Covid-19 faraldursins hafði áhrif á fjölda umsókna og virðist líka hafa haft áhrif á verkefnin sem sóttu um. Nýsköpun í kjölfar faraldurs og breyttri heimsmynd sem blasir við svo sem áhersla á stafrænar lausnir, sjálfbærni og matarsóun eru meðal verkefna sem hljóta styrki.

Í ljósi aðstæðna var ekki hægt að hafa úthlutun í tengslum við ársfund Hönnunarmiðstöðvar með tilheyrandi mannfögnuði eins og tíðkast hefur. Í staðinn teiknaði Rán Flygenring þessa lýsandi mynd af styrkafhendingunni sem ekki fór fram.

MAT. Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu, verkefni MStudio, hlaut hæsta styrkinn að þessu sinni, verkefnastyrk sem hljóðar upp á 3 milljónir króna. Um er að ráð heildstætt dreifihagkerfi fyrir matvæli sem hannað er í þeim tilgangi að lágmarka óþarfa dreifingu matvæla, bæta lífsgæði og minnka sóun.

Spaksmannsspjarir, fatamerki Bjargar Ingadóttur, hlaut næst hæsta styrkinn, 2 milljónir króna fyrir útfærslu á stafrænum flíkum í stafrænni verslun.

„Það er gott að sjá allan þennan fjölda umsókna hjá Hönnunarsjóði. Í þessum óvenjulegu aðstæðum höldum við áfram að hlúa að nýsköpun á öllum sviðum. Skapandi greinar auðga umhverfi okkar og tilveru og ég hvet ykkur til að sækja um í aukaúthlutun Hönnunarsjóðs síðar í mánuðinum,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

„Mikill fjöldi umsókna í Hönnunarsjóð endurspeglar þörfina fyrir fjárfestingu í hönnunardrifnum verkefnum. Nú, sem aldrei fyrr, þarf að leita nýrra leiða, efla hönnunardrifna nýsköpun og ýta undir þróun atvinnulífs skapandi greina, með áherslu á jafnvægi milli umhverfis, lífsgæða, mannlífs og verðmætasköpunar,“ segir Birna Bragadóttir, formaður stjórnar Hönnunarsjóðs.

Opið er fyrir umsóknir í aukaúthlutun Hönnunarsjóðs, átaksverkefni stjórnvalda í kjölfarið á COVID-19 heimsfaraldri. Hönnuðir, arkitektar og fyrirtæki sem byggja starfsemi sína á hönnun eru hvött  til að sækja um. Umsóknarfrestur rennur út 18. maí næstkomandi og stefnt er að úthlutun 29. maí.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um styrkþega og umsóknir á heimasíðu Hönnunarsjóðs hér.