Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

26 maí 2020

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fjármálastefna, -áætlun og -frumvarp lögð fram samhliða í haust

{image.Description}
Golli

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar á lögum um opinber fjármál.

Frumvarpið felur í sér að veitt verði nauðsynlegt ráðrúm í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveirunnar til þess að undirbúa endurskoðun fjármálastefnu fyrir árin 2018–2022, fjármálaáætlun fyrir árin 2021–2025 og fjárlagafrumvarp fyrir árið 2021 og leggja fram samhliða á þingsetningarfundi haustið 2020, svo og þær skattalagabreytingar og aðrar ráðstafanir í ríkisfjármálum sem því fylgja.