Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

02 júní 2020

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Undirbúningur stuðningslána vel á veg kominn

{image.Description}
Golli

Föstudaginn 29. maí birti fjármála- og efnahagsráðherra reglugerð um stuðningslán Í henni er meðal annars fjallað um hlutlæg viðmið vegna mats á rekstrarhæfi fyrirtækja, líkt og gert er ráð fyrir í nýlegum lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

Áður höfðu seðlabankastjóri og fjármála- og efnahagsráðherra gengið frá samningi um umsýslu vegna ábyrgða ríkissjóðs á stuðningslánunum og þess er vænst að samningar Seðlabankans við lánastofnanir verið frágengnir fljótlega.

Hægt er að kynna sér skilyrði fyrir lánveitingu og reiknivél á vefnum Ísland.is