Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

09 september 2020

/

Innviðaráðuneytið

Streymi frá kynningarfundi um lægri flugfargjöld fyrir íbúa landsbyggðarinnar

{image.Description}
Egilsstaðaflugvöllur

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, mun kynna í dag nýjung, sem mun gefa íbúum á landsbyggðinni sem búa fjarri höfuðborginni kost á lægri flugfargjöldum til borgarinnar frá og með deginum í dag. Ráðherra mun kynna verkefnið á kynningarfundi með fjölmiðlum kl. 13 í  dag í flugstöðinni á Egilsstöðum.

Fundinum verður streymt beint á síðu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins á Facebook.