Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

09 desember 2020

/

Innviðaráðuneytið

Dómsmálaráðuneytið

Fjórða og fimmta græna skrefið í höfn

{image.Description}
Haukur Guðmundsson, ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins, og Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, tóku á móti viðurkenningu Grænna skrefa. Með þeim er Ásdís Nína Magnúsdóttir, sérfræðingur Umhverfisstofnunar.

Umhverfisstofnun hefur veitt dómsmálaráðuneytinu og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu viðurkenningu fyrir að hafa innleitt öll grænu skrefin fimm. Markmið verkefnisins Græn skref er að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi opinberra stofnana og efla umhverfisvitund starfsfólks. 

Ráðuneytin tvö hafa tekið virkan þátt í verkefninu og unnið náið saman þar sem þau deila húsnæði. Þau skráðu sig til leiks í nóvember 2018 og fengu fyrstu þrjú skrefin á einu bretti í ágúst 2019. Viðurkenningin fyrir fjórða og fimmta skrefið var afhent 4. desember sl. Ráðuneytin munu nú vinna að því að viðhalda þeim árangri sem náðst hefur.

Bæði ráðuneytin vinna eftir umhverfisstefnu Stjórnarráðsins og loftslagsstefnu Stjórnarráðsins.