20. nóvember 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið
Tímamótasamningur um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Vík
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, og Hermann Jónasson, forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, hafa undirritað samkomulag um aukið framboð íbúðarhúsnæðis í Mýrdalshreppi á tímabilinu 2023-2028 og fjármögnun uppbyggingar hagkvæmra íbúða og félagslegs húsnæðis.