24. nóvember 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Norrænn leiðtogafundur barna og ungmenna
Núna er komið að okkur! Fulltrúar barna og ungmenna frá öllum Norðurlöndunum á aldrinum 13–25 ára eru komnir saman í Hörpu á Norrænum leiðtogafundi barna og ungmenna. Þar ræða þeir saman og láta skoðanir sínar í ljós um málefni sem snerta þau eins og frið, skólamál, atvinnu, fordóma, geðheilbrigði, sjálfbærni, umhverfismál, fjölmenningu, tungumál, þátttöku, lýðræði og mannréttindi.