28. júní 2023Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Næsta skref tekið
Vefurinn Næsta skref mun halda áfram starfsemi. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Hildur Betty Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, undirrituðu samning þess efnis í gær. Vefurinn hefur nú verið opnaður að nýju.